er spurður spurningar úr hirðisbréfinu góða sem varða inngöngu Samfylkingar í tvær ríkisstjórnir, það sem hann kallar "Hrunstjórnina" og Vinstri stjórnina:
"Við gengum þá inn í valdakerfi hinna gömlu flokka, án þess að gera kröfu um grundvallarbreytingar. Þar með vorum við ófær um að takast á við fjölbreytt hagsmunatengsl peninga og stjórnmála – sem enn eru ráðandi – og þá blindu á hættur sem var ríkjandi í aðdraganda hruns."
Úr því að svona fer í báðum tilvikum þá spyr Sigurjón:
"Árni Páll: Hvað er þá Samfylkingin?"
Ekkert svar nema tilboð um langa ræðu um hvað Samfylkingin sé, gæti,hefði eða ætti að vera.
Vefjist það fyrir spyrlinum og Árna Páli að skýra hvað Samfylkingin sé þá annað en niðurstaðan af þessum andstæðu ríkisstjórnarmynstrum, er þá furða að það vefjist fyrir vesaling mínum?
Þarf ég fleiri orð um þetta?
Hvað er Samfylkingin núna eða síðar Árni Páll?