fór mikinn á Útvarpi Sögu hjá Pétri Gunnlaugssyni. Þar hrópaði hann eftir stuðningi almennings við óraunhæfar kaupkröfur gagnvart Rio Tinto í Straumsvik,
Hvernig honum getur dottið í hug að miklu lægra launaður almenningur hafi samúð með ofbeldisfullum óraunhæfum kröfum þessara þokkapilta á hendur fyrirtækinu sem hefur brauðfætt þá í gegn um árin?
Fyrirtækið í Straumsvik berst núna í bökkum og getur ekki borgað meira nema með skuldsetningum. Röksemdir frá þeim virka álíka eins og blærinn í laufi gegn þessum hálaunalýð undir ófriðarstjórn þessa Gylfa.
Ef þetta væri ekki svona mikið alvörumál þá myndi maður óska að þessir byltingamenn yrðu fyrir einhverju sem um munaði fyrir ábyrgðarleysið sem þeir sýna. Það er eins og þeir séu að mana fyrirtækið til að loka.
Hugsanlega eru gömlu kommarnir sem alltaf hötuðust við álverið í Straumsvík eins og menn þekktu síðast í Hafnarfirði sem felldu stækkunina, komnir loksins til áhrifa sem þeir hafa ekki haft til þessa?
Takist þeim að láta álverið loka þá er þýðingarmikið að atvinnurekendur á Íslandi standi nú einu sinni saman og ráði engan af þessu liði í vinnu aftur. Mína samúð fær hann ekki.
Loki Gylfa Ingvarsson og félagið hans úti í langan tíma.