er mín niðurstaða eftir að hlusta á Hrafnaþing á ÍNN nú í kvöld.
Það er ekki hægt að þola lengur framgöngu þessarar stofnunar RÚV eins og hún hefur verið rekin til margra ára. Hlutdrægni, pólitísk afskipti og ef ekki einskonar landráðastarfsemi með innflutningi erlendra afla til að ráðast gegn löglega kjörnum stjórnvöldum þessa lands er komin út fyrir allan þjófabálk.
Síðustu afrekin voru m.a. aðförin að Sigmundi Davíð þar sem erlendir aðilar í samsæri með íslenskum aðilum eru fluttir til landsins til að ginna forsætisráðherra landsins í viðtal á upplognum forsendum. Aðförin tókst og upphlaupslið og árásarsveitir kommúnista söfnuðust á Austurvöll og börðu Sigmund úr úr embætti sem kannski var búinn að vinna fyrir því að einhverju leyti.
Næst kostar Björk Guðmundsdóttir að sögn ferð Evu Joly til Íslands þar sem hún veður beint inn í þátt hjá RÚV til að blanda sér í íslensk innanríkismál rétt fyrir kosningar. Þar segir hún hreint út að okkar helstu ráðamenn séu helst ótíndir reyfarar sem skreyti í Panamaskjöl og þjóðin verði að kjósa frá í kosningunum eftir viku.
Svokallaðir fréttamenn RÚV gapa upp í þessa konu sem hefur ekki hingað komið í annan tíma nema til að raka saman fé fyrir sjálfa sig og sá fræjum haturs og grunsemda í þjóðarsálina. Þessi franski kommúnisti með óverulegt kjörfylgi í sínu fósturlandi situr upp á kaup fyrir franska alþýðu á Evrópuþinginu. Vinstri flokkarnir hérna ætla að keyra okkur í Evrópubandalagið með hjálp RÚV þar sem við munum fá 5 þingmenn alls af yfir 700 sem þá geta verið sessunautar Evu Joly.
Hatursmaður Sjálfstæðisflokksins er fenginn til að setja saman klámþátt á RÚV til að hneyksla hvern meðal Íslending. Hann fær svo að setja saman skemmtiþátt sem reynir að falsa myndir af formanni Sjálfstæðisflokksins með því að sýna þær hægt sem gefa í skyn að hann sé blindfullur að baka kökur í barnaafmæli. Enn eitt stykkið í kosningabaráttunni af hálfu þessa endemis apparats RÚV.
Það eru gerðar skoðanakannanir af þessari stofnun sem allar stefna til vinstri, annað hvort með ráðum eða dáðum. Andstyggilegheit fréttamanna og spyrla í garð allra sem eru ekki vinstrisinnar eru svo áberandi og alvanaleg að þetta fólk er hætt að reyna að leyna því. Og Hemir Már Pétursson úr Allaballanum gamla hefur sama stílinn á Stöð 2 þar sem Jón Ásgeir ræður ríkjum.
Öllum þunga þessara miðla er svo beint beint gegn Sjálfstæðisflokknum sem á sér formælendur fáa.
Allt þetta vinstra fólk kemur svo skælbrosandi fram í öðrum þáttum og þykist alhlutlausir venjulegir þulir og fréttamenn.
Ég hef verið stuðningsmaður Ríksútvarpsins frá dögum Jóns Múla og Gufunnar. Ég hef reynt að verja RÚV sjónvarpið lengst af og vonað að það myndi einhvern tímanna læknast af þeirri vinstri veiki sem þar er búíð að ríða húsum um árabil.Hún fer hinsvegar versnandi dag frá degi. Varla einn fréttamaður sem ég man í svipinn virðist vera hlutlaus á RÚV og heldur ekki á Stöð 2.
Nú er ég búinn að fá nóg.
Ég vil loka þessari stofnun RÚV og leggja hana niður. Ég verð andstæðingur hennar og allra sem þarna vinna og bið hana aldrei þrífast. Hvernig henni verður lokað má einu gilda, seld eða rifin, hirði ég ekki um. 365 er löngu gjaldþrota að réttum lögum og safna áfram skuldum eins og RÚV.Einhvern tímann hlýtur að koma að skuldadögum.
Ríkisútvarp sem hljóðvarp, sem segir sannar fréttir úr umheiminum getur verið til umræðu að hafa áfram svipað og það var í gamla daga. Kannski er það eitthvað öryggistæki. En Ríkissjónvarpið er óþarft með öllu og því á að loka. Það er pólitískt rauðlitað ,hlutdrægt og því óþolandi með öllu auk þess sem dagskráin er yfirleitt hundleiðinleg að margra dómi.
Burt með það og látum einkaframtakið sjá um sjónvarp til landsmanna. Það er búið að sýna það að tæknin er ekki til hindrunar á neinn hátt. Einkaframtakið getur rekið sjónvarp miklu betur en kommarnir á RÚV eru að gera fyrir okkar skattfé.Það má leigja afnot af dreifikerfinu sem er sjálfsagt ágætt. En þessi stofnun sem slík hefur sannað sig sjálf að vera er óþörf og beinlínis skaðleg fyrir skoðanamyndun í landinu.
Kínverjar reka hér sitt ríkissjónvarp. Þeim væri í lófa lagið að blanda sér í okkar mál.AlJazera líka og svo er um fleiri erlendar stöðvar sem hér nást. Máttur þesara miðla er mikill til að hafa áhrif á Íslendinga. Áróðursbylgjur utan úr heimi brotna hér í íslenskum brjóstum. Það er því óþarfi að reka hér aðra stjórnmálastöð fyrir íslenskt skattfé rekur einhliða áróður eins og RÚV gerir.
Því segi ég: Niður með RÚV, lokum því og leggjum það niður.