í Morgunblaðinu er athugult að vanda.
Þar segir m.a.:
"..Á þessum óvissutímum er vart hald í nokkrum hlut. Þannig breyttist Merkel kanslari Þýskalands úr óskeikulum stjórnmálasnillingi, sem stóð ofar allri kröfu, í andstæðu sína og allt á einni nóttu.
Þetta hefur gjörbreytt öllu í Þýsklandi, en engu um það, að allir íslenskir stjórnmálaflokkar halda aðdáunarverðri tryggð við innflytjendastefnu kanslarans, þótt ekki standi steinn yfir steini.
Enn eru allir alvöru íslenskir stjórnmálamenn sannfærðir og í ljósi „gagnsærra umræðustjórnmála,“ sammála um að slíka stefnu og allmargar aðrar megi alls ekki ræða.
En í Þýskalandi hrukku menn upp með andfælum þessa nótt. Hafa þarlendir, af alkunnri nákvæmni, spurt sig hvert hafi verið helsta inntakið í ókskeikula stjórnunarstílnum sem allir göptu upp í.
Bráðabirgðaniðurstaða virðist sú, að stíllinn hafi gengið út á óskeikula ákvörðunarfælni sem allir hafi talið sýna aðdáunarverða festu. ..."
"..En hvað sem tali um „forgjöf“ líður, þá hafa fæstir Íslendingar beðið um að horft sé til þeirra meðaumkunaraugum. Úttaugaðir umhyggjumenn „ónýta Íslands,“ sem sjá móðurflokk sinn kominn langt undir 10% í könnunum og helsta arftakann vera í svipuðu fylgi, ættu kannski að hugleiða hvers vegna svo sé komið.
Það getur ekki verið með öllu „ónýtt“ að hugleiða það. Í Þýskalandi mælist flokkurinn AfD (Hin leiðin fyrir Þýskaland) nú með 15,5% fylgi.
Annar tveggja „stórflokka“ landsins, flokkur Jafnaðarmanna, er aðeins með 6 prósentustiga fylgi umfram AfD. Síðarnefndi flokkurinn var stofnaður fyrir 4 árum og helsta mál hans þá var að Þýskaland hætti í evrusamstarfinu. Sjónarmið flokksins í því máli fengu byr eftir að ógöngur evrunnar blöstu við sífellt fleirum og svo hafa vanhugsaðar ákvarðanir í málum innflytjenda ýtt mjög undir fylgi við flokkinn.
Þessi þróun er ekki endilega fagnaðarefni. En hún er umhugsunarefni fyrir fleiri en leiðtoga Þýskalands og þar með Evrópusambandsins.
Fer það lengur á milli mála?
Varla."
Bréfritari gerir sér ljósa þöggunarstefnu þá sem ríkir meðal stjórnmálamanna og fjölmiðla um málefni innflytjenda. haldið er áfram að hrúga hér inn hælisleitendum vegna þess að svonefnd úrskurðarnefnd er í verkleysi og afskastar engu af því sem hún á að gera. Meðan hleðst vandamálið upp og er orðið óviðráðanlegt.
Aðeins Útvarp Saga með þau Pétur Gunnlaugsson og Arnþrúði Karlsdóttur í fararbroddi standa í stöðugri upplýsingagjöf varðandi þetta málefni.
Það er gleðilegt af bréfritari Reykjavíkurbréfs er kominn í þeirra hóp sem gera sér ljósan alvarleika innflytjendamálanna.