Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Þjóðfylkingin

$
0
0

var til umræðu á Hringbraut rétt áðan. Guðmundur Karl (?) ?frambjóðandi í Suðurkjördæmi skýrði málin.

Þjóðfylkingin er ekki rasistaflokkur heldur þjóðernissinnaflokkur sem vill ekki óheftan innflutning múslíma til landisins. Þetta get ég skrifað undir.

Þjóðfylkingin vill ganga úr Schengen og verja landamæri ríkisins. Það vil ég líka.

Þjóðfylkingin vill nota þá peninga sem nú fara í hælisleitendur til aðstoðar í heimalöndum þeirra.  Þeir segja féið rýrna hérlendis í alsskyns óþarfa kostnaði.Ég er sammála þessu.

Þjóðfylkingin vill draga dám af reynslu Norðurlandanna af innflutningi múslíma. Það vil ég líka.

Þjóðfylkingin vill beita 48 tíma reglunni á hælisleitendur eins og Norðmenn gera. Það vil ég líka.

Þjóðfylkingin styður aðild Íslands að SÞ,NATO, EFTA og norrænu samstarfi. Það geri ég líka.

Þjóðfylkingin vill endurskoðun á EES með tvíhliða viðskiptasamning við ESB í huga sbr. Sviss. EES hentar ekki íslenskum hagsmunum. Þetta samþykki ég heilshugar.

Þjóðfylkingin hafnar alfarið aðild Íslands að ESB og TISA af pólitískum ástæðum. Það geri ég líka.

Þjóðfylkingin vill stórefla löggæslu, landhelgis - og tollgæslu og auka þátttöku Íslands í eigin vörnum. Varðskipaflotinn verði stórefldur og nýjar þyrlur keyptar fyrir gæsluna og sótt verði um styrk til þess til mannvirkjasjóðs NATÓ. Þátttaka Íslands í vörnum landsins verði aukin meðal annars með endurreisn Varnarmálastofnunar. Þessu er ég sammála

 

Þjóðfylkingin er alfarið á móti að moskur verði reistar á Íslandi eins og þegar er gert í fjölmörgum ríkjum, bann verði lagt við búrkum, umskurði kvenna af trúarlegum ástæðum og skólum íslamista á Íslandi. Þessu fylgi ég af sannfæringu.

Þjóðfylkingin vill að núverandi staðsetning innlandsflugvallar verði til framtíðar. Þessu fylgi ég af hita. Vil fá beint millilandaflug líka frá Reykjavíkurflugvelli.

Þjóðfylkingin vill að Landsvirkjun verði ætíð að fullu í eigu þjóðarinnar og ekki verði lagður rafmagns sæstrengur úr landi. Sumu af  þessu er ég sammála.

Þjóðfylkingin hafnar hugmyndinni um fjölmenningu á Íslandi en styður öflugar aðgerðir til aðlögunar þeirra sem setjast hér Þessu er ég mjög harðfylgjandi sammála.

Af hverju get ég ekki fengið neinu þessu framgengt með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Þar verð ég að horfa á þær Unni Brá og Áslaugu Örnu, uppáhaldsframbjóðanda formannsins, dansa stífidans á Landsfundi fyrir óheftum innflutningi múslíma undir stjórn formanns kjördæmisráðs í SV og velvilja formanns og þola bælingu umræðna um málefni flóttamanna.

Á ég að styðja þetta?

Af hverju fær ég ekki einu sinni að ræða þessi innflytjendamál á vettvangi flokksins míns. Þar eru reyndustu stjórnmálamennirnir sem ég hef trú á og vil fylgja. En af hverju hunsa þeir mig og aðra svona gersamlega? Erum við svona lítið seglskip sem ekki getur pípt, að þeir geti látið sem við séum ekki til? 

Hvað er Sjálfstæðisflokkurinn að reyna að gera mér?

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922