Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Ó þú dýrðlega Samfylkingarsumar

$
0
0

sem blasir við í beinni útsendingu frá flokksfundum fylkingarinnar um land allt. 

Þar kenna þeir forystunni um ófarir flokksins í skoðanakönnunum. Ekki gerum við Sjálfstæðismenn það.Oj bara. Gleðin er heilust og dýpst við það smáa.

Þeir kratar halda að Sigríður Ingibjörg geti öllu reddað bara ef þeir gráskjóni og móskjóni fari frá, gangi úr flokknum og láti aldrei sjá sig þar aftur. Þá sigli flokkurinn hraðbyri upp á stjörnuhimininn með nýja og ferska stefnu sem fólkið fellur fyrir.

Nú verður það aðild að Evrópusambandinu, aðild að Evrópusambandinu og aðild að Evrópusambandinu sem blífur.Og svo og ný stjórnarskrá með nægilegum fullveldisframsalsheimildum fyrir alþjóðahyggju og aðild að Evrópusambandinu, meira beinu lýðræði og minni kratisma á öllum sviðum nema þar sem regluverk Evrópusambandsins kemur í veg fyrir sjálfstjórnarslys.

Svo koma fleiri flóttamenn, meiri vaxtabætur, barnabætur, húsaleigubætur, framfærslubætur, meiri jöfnuður meðal fátæks fólks sem verði ávallt sem jafnfátækast. Hærri laun komi fyrir embættismennina, meiri styrki fyrir listir og aðrar ölmusur. Meiri skatta og fleiri skatta, hærra bensínverð, minni útblástur, þrengri götur, færri bíla og fleiri reiðhjól.Og niður með Ísrael.  

Mikið er gott að þeim dettur aldrei í hug að það sé eitthvað að stefnunni sem gangi bara ekki upp hjá kjósendum? Kjósendur vilji þetta bara ekki?

Kaldhæðni kjósenda kemur svo í ljós þegar Bjarta framtíðin hans Guðmundar Steingrímssonar verður helsvört nótt og sá möguleiki að eftir tvö ár muni enginn nema nákomnir muna eftir nafni hans né Marshalls meðreiðarsveinsins.

Ekkert af þessu gildir um VG, þar verður áfram boðið upp á Steingrím J. og fjármálaspeki hans, Hjörleif  Gutt og félaga Svavar. Sá flokkur þarf ekki að liggja yfir stefnumálum þar sem hann hefur bara eins klára stefnu í öllum málum. Sú stefna heitir heitir hentistefna. Hún gildir við öll tækifæri sem Steingrími J. bjóðast til eigin frama. Á henni klikkar þetta kompaníi ekki.

Ó þú dýrðlega vinstra vor.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922