Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Blöndum birkifræið

$
0
0

sem verið er að dreifa með lúpínufræi.

Reynslan af Haukadalsheiði sýnir nákvæmlega hvað þessar tegundir geta gert saman. Lúpínan skýlir birkinu í uppvextinum og býr til áburð handa því.Birkið kemur svo upp úr lúpínubreiðunum í fyllingu tímans.

Þetta er öllum til sýnis þarna innfrá á Haukadalsheiðinni hvernig þetta sambýli hefur tekist.

Eitt og sér á birkið erfiðara uppdráttar á örfoka landi. En í sambýli við lúpínuna gerist kraftaverkið.

Hún Stína á Geysi, sú frábæra kona sem er ekkjan hans Greips Sigurðssonar vinar míns og arftaki í starfi, sem þekkir þetta betur en nokkur annar núlifandi einstaklingur, segir beint út í viðtali að þetta hefði ekki tekist svona vel á Haukadalsheiðinni án  lúpínunnar. 

Blöndum birkifræið með lúpínufræi og bætum landið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922