Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Vælurnar

$
0
0

um mannúð og mildi standa hástöfum upp úr Magnúsi Norðdahl sem græðir á málarekstri fyrir Egyptana.

Af hverju á ekki að reikna fjölskyldunni til tekna að hafa fengið frítt uppihald hérlendis í 2 ár vegna ræfildóms íslenskra embættismanna í  Útlendingastofnun?  Er íslenskunám barnanna einskis virði? Er dvölin hér í lúxus eisnkis virði fyrir fjölskylduna? Fyrir okkur var hún bar kostnaður sem okkur bar engin skylda til að leggja fram..

Er fjölskyldufaðirinn ekki bara ótíndur hryðjuverkamaður á flótta undan réttvísinni í Egyptalandi og ber börnin fyrir sig að hætti heigla?  Getur hann sannað að svo sé ekki

„Við telj­um ákaf­lega sorg­legt að láta fjöl­skyld­una und­ir­gang­ast þetta próf eins og þessa brott­vís­un alla í heild sinni. Það skýt­ur auðvitað skökku við að á sama tíma og for­sæt­is­ráðherra lands­ins stíg­ur fram og tal­ar með þeim hætti sem hún gerði í Sprengisandi þá sé verið að und­ir­búa þenn­an brott­flutn­ing eins og eng­inn sé morg­undag­ur­inn,“ seg­ir Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður egypskr­ar fjöl­skyldu sem senda á úr landi á miðviku­dag. 

Und­ir­bún­ing­ur fyr­ir brott­vís­un er nú í gangi og er skimun fyr­ir kór­ónu­veirunni hluti af þeim und­ir­bún­ingi. Magnús tel­ur að und­ir­bún­ing­ur­inn sé ekki í sam­ræmi við um­mæli for­sæt­is­ráðherra um að skoða þurfi lang­an málsmeðferðar­tíma fjöl­skyld­unn­ar sér­stak­lega, sem er 15-16 mánuðir eft­ir því hvernig litið er á málið, og að biðin eft­ir úr­lausn hafi verið ómannúðleg. Magnús tel­ur að orð Katrín­ar, sem hún lét falla í Sprengisandi um helg­ina, hafi verið stuðnings­yf­ir­lýs­ing við fjöl­skyld­una. 

„Það þarf ekki annað en að hlusta á það sem hún seg­ir. Hún til­tek­ur að það sé ómannúðlegt gagn­vart þess­um börn­um að láta þau und­ir­gang­ast meðferð af þessu tagi og líka þá önn­ur börn í sam­bæri­legri stöðu. Þetta verður ekki skilið á ann­an hátt en stuðnings­yf­ir­lýs­ing við fjöl­skyld­una.“

Aðstæður geti breyst hratt

Magnús seg­ir að þrátt fyr­ir að brott­vís­un sé fyr­ir­huguð á miðviku­dag geti margt enn gerst. 

„Dag­ur­inn er ný­byrjaður. Það er fyr­ir­hugaður rík­is­stjórn­ar­fund­ur á morg­un sem og í alls­herj­ar­nefnd. Aðstæður geta breyst hratt. Það sem ég vil taka fram líka er að það hlýt­ur að hafa ein­hverja merk­ingu þegar for­sæt­is­ráðherra tal­ar með þess­um hætti. Hún fer fyr­ir rík­is­stjórn­inni.“

Heild­stæð skoðun á mála­flokkn­um mun ekki bjarga fjöl­skyld­unni, að sögn Magnús­ar. Spurður hvað myndi forða þeim frá brott­vís­un seg­ir Magnús: 

„Áslaug Arna gæti til að mynda breytt reglu­gerð 540/​2017 með mjög ein­föld­um hætti til þess að koma í veg fyr­ir að mál af þessu tagi komi upp. Hún seg­ir ekki kær­u­nefnd út­lend­inga­mála fyr­ir verk­um en ráðherra get­ur að sjálf­sögðu gefið út ein­hvers kon­ar al­menn leiðbein­andi til­mæli út til stjórn­sýsl­unn­ar. Nær­tæk­ast væri að breyta reglu­gerðinni.“

Hafa dvalið rúma 16 mánuði hér­lend­is

Magnús er ósam­mála full­yrðingu Áslaug­ar Örnu um að ekki sé við kerfið að sak­ast hvað varðar lang­an málsmeðferðar­tíma í máli egypsku fjöl­skyld­unn­ar. Hann bend­ir einnig á að ef ekki er kveðinn upp úr­sk­urður inn­an 16 mánaða á stjórn­sýslu­stigi sé heim­ilt að veita barni dval­ar­leyfi á grund­velli mannúðarsjón­ar­miða. 

„Þegar niðurstaða var kveðin upp í þeirra máli og þeim birt sú niðurstaða voru liðnir 15 mánuðir og 11 dag­ar. Þá var þeim gef­inn 30 daga frest­ur til þess að yf­ir­gefa landið. Á meðan þess­ir 30 dag­ar líða eru þau í lög­legri dvöl í land­inu. Þau ná 16 mánuðum og 11 dög­um í lög­legri dvöl á land­inu,“ seg­ir Magnús og bæt­ir við:

„Það er aft­ur á móti spurn­ing um það hvar þú átt að draga mörk­in. Hvort það sé við upp­kvaðningu úr­sk­urðar eða þegar frest­ur til að yf­ir­gefa landið renn­ur út ell­egar við fram­kvæmd frá­vís­un­ar eða brott­vís­un­ar. Það eru ólík­ar túlk­an­ir á því hvernig eigi að meta þenn­an málsmeðferðar­tíma sem slík­an. Stóru breyt­ing­arn­ar sem við mun­um sjá í mála­flokkn­um eru ef­laust breyt­ing­ar á því hvernig þessi málsmeðferðar­tími er túlkaður.“

Magnús tel­ur að orðræða dóms­málaráðherra um málið sé ólík orðræðu for­sæt­is­ráðherra. Áslaug sagði þó í sam­tali við mbl.is í gær að hún væri sam­mála Katrínu um það að ómannúðlegt gæti tal­ist að láta fólk dvelja hér­lend­is of lengi í óvissu um hvort það yrði sent úr landi. 

„Áslaug Arna er auðvitað hluti af rík­is­stjórn­inni. Það hlýt­ur að hafa ein­hverja merk­ingu þegar for­sæt­is­ráðherra, sem fer fyr­ir rík­is­stjórn­inni, fer fram með þeim hætti sem hún gerði í Sprengisandi í gær. Rík­is­stjórn­in verður að koma fram sem ein heild í mál­um sem þessu.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922