hjá Geir Ágústssyni:
"
Þriðjudagur, 8. september 2020
Jarðefnaeldsneyti er frábært
Allt tal um að hætta notkun á jarðefnaeldsneyti er tómt tal. Mannkynið hvorki ætti né getur hætt að nota jarðefnaeldsneyti með núverandi tækni, og það eru fá teikn á lofti um að tæknin geti leyst jarðefnaeldsneytið af á næstu áratugum.
Auðvitað geta rík lönd talað á öðrum nótum. Það er alveg hægt að neyða almenning til að taka upp hálfþróaða tækni og niðurgreiða með svimandi fjárhæðum valkosti við jarðefnaeldsneyti. Auðvitað. Og um leið láta börn í Afríku grafa á eftir sjaldgæfu málmunum sem þarf í öll þessi batterí. En fyrir heiminn, heilt á litið, eru það bara heimatilbúnar og svæðisbundnar æfingar sem skipta engu máli fyrir heildarmyndina og mannkynið. Á Ísland að nota jarðefnaeldsneyti eða ekki? Svarið skiptir ekki máli nema fyrir íslenska skattgreiðendur.
Nú fyrir utan að jarðefnaeldsneyti er ekkert vandamál í sjálfu sér. Jú, auðvitað veldur ósíaður kolareykur usla, en hreinn gasbruni eða bruni bensínvélar er engin sérstök óværa. Fyrir milljónir fátækra Jarðarbúa er raunar mikil framför í að komast í kol til brennslu, sem valkost við bruna dýraskíts innandyra með tilheyrandi reykeitrun og jafnvel hættu á dauða.
Hafi menn áhyggjur af styrkleika koltvísýrings í andrúmsloftinu og því að hann hafi meiri áhrif á hitastig lofthjúpsins en sjálf sólin þá er sú goðsögn á góðri leið með að verða afhjúpuð sem ósönnuð tilgáta. Koltvísýringur er ekki mengun. Hann er tiltölulega áhrifalítill fyrir lofthjúpinn, en meiri styrkur um leið frábær áburður fyrir plönturnar. Því meira, því betra (upp að ákveðnu marki, auðvitað).
Svo þurfum við að muna að jarðefnaeldsneyti er ekki bara eldsneyti heldur líka hráefni. Það kæmi mér mjög á óvart ef það væru færri en 50 hlutir í kringum þig, sem þetta les, sem á einn eða annan hátt eru framleiddir með notkun olíu sem hráefnis.
Mörgum er tíðrætt um orkuskipti. Þau eru ekki frá jarðefnaeldsneyti í græna orku (svokallaða), heldur frá skítugri orku til hreinni."
Loftslagsbullið úr hinum fjörtíuþúsund Parísarfíflum AlGore er löngu komið niður fyrir vitrænt stig niður á plan Asbergerheilkennisins. Enginn minnist á það hvort sólin sé áhrifavaldur á hitastig jarðar svo sem var á tímum Risaeðlanna.
Langalangafi minn, hann Eiríkur Björnsson á Karlsskála varð svo ríkur á því að sjá fyrir hversu mögum áratogum hans fiskur var verðmeiri en fiskur innfirðinga, að hann gat gefið þeim heila kirkju þegar fram liðu stundir.
Fái ég mér nýjan bíl þá skal það verða dísill svo ég muni hvað hefur staðið undir framþróun mannkynsins og forfeðra minna.