Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Meiri fisk

$
0
0

segir Jón Kristjánsson i snarpri ádrepu á bloggi sínu:

Jón segir:

"Nú er hér dýpsta kreppa í 100 ár. Eftir að ferðaþjónustan féll er talað er um að auka þurfi framleiðslu. Eina sem heyrist frá stjórnmálamönnum er að efla þurfi nýsköpum. Ég vil líkja nýsköpun við að hagnaðurinn sé fólginn í útflutningi á 100 ára gömlum eikartrjám. Styrkurinn til nýsköpunar felst í því að veita fé til að kaupa fræ til niðursetningar.

Nú er það svo að við eigum í hafinu 1,3 milljón tonna þorskstofn en veiðum einungis 18% af honum, 250. þús tonn, en á árum áður 35-40% og gaf það góðan og jafnan 350-450 þús. tonna afla.

Enginn stjórnmálamaður nefnir auknar veiðar til að auka framleiðslu.

Nú er það svo að mestur hluti aflans kemur í hlut svonefndra sægreifa, sem hafa hag í því að halda afla niðri til að skapa skortstöðu og halda uppi leiguverði á aflaheimildum. Getur verið að vald þeirra sé svo mikið að það fái ráðamenn til þess að minnast ekki á aukningu sjávarafla?

Ekki einu sinni að láta óháða aðila gera áhættumat á því að auka t.d. þorskveiðar um 100-200 þús. tonn og tvöfalda ufsaveiðar?

Mér flaug þetta í hug þegar ég horfði á fréttirnar í kvöld um Norðurfjörð á Ströndum, sem brothætta byggð og hvað væri þar til ráða.

Menn þorðu ekki að nefna hið augljósa, byrja á að gefa trilluveiðar frjálsar. Sama má segja um Grímsey og fleiri staði. Lausn þessara staða er svo augljós að menn ættu að detta um hana. En ráðherra sjávarútvegs er ekki í þeirra liði."

Bjarni Benediktsson eldri sagði eitt sinn: "Heldur drepum við fiskinn heldur en fólkið."

Ef einhvern tímann var þörf þá er nú nauðsyn að hlusta á Jón Kristjánsson.Hann hefur lengi talið og fært gild rök fyrir að um vanveiði á miðunum okkar sé að ræða sem leiði til sjálfsáts fiskistofnanna.

Nú er komið að því að gera eitthvað annað en bara Hafró segir um geymslu fisksins í hafinu.

Meiri fisk á land og það strax!
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922