dagsins hljóðar svo:
"Í afar athyglisverðum leiðara Morgunblaðsins í dag, mánudag, segir m.a.:
"...smám saman hefur verið grafið undan áhrifum og völdum stjórnmálamanna en áhrif og völd embættismanna aukin að sama skapi. Ráðherrar hafa til að mynda gefið frá sér, í raun að minnsta kosti, töluverðan hluta ákvarðana, sem áður þótti sjálfsagt að þeir tækju."
Þetta er rétt og um leið hættulegt lýðræðislegum stjórnarháttum.
Það eru hinir kjörnu fulltrúar á Alþingi og í sveitarstjórnum, sem hafa hið stefnumarkandi vald í umboði þjóðar eða einstakra byggðarlaga. Embættismenn eru ráðnir til að framkvæma ákvarðanir kjörinna fulltrúa. Þeir eru ekki ráðnir til að marka stefnu eða taka stefnumarkandi ákvarðanir.
Þessi þróun er komin út yfir öll skynsamleg mörk í stjórnarráði Íslands og einstökum sveitarfélögum.
Það er tími kominn til að kjörnu fulltrúar snúi þessari þróun við."
Gott dæmi um þetta er árás Helgu Bjargar á Vigdísi Hauksdóttur. Þar er kjörinn fulltrúi tekinn og kaghýddur á 100 blaðsíðum af embættismanni vinstraliðsins í Reykjavíkurborg fyrir að dirfast að setja út á straffaða framgöngu þessarar konu.
Raunar vekur fátt furðu lengur í framgöngu þessa fólks sem merkilegt eykur fylgi sitt í skoðanakönnunum við hverja uppákomu þó hún skýrist mest af sókn Píratanna fremur en vinsældum Dags B. og hans nóta.
En greining Styrmis Gunnarssonar og auðvitað Davíðs Oddssonar er vissulega athyglisverð.