að fara í Kringluna í gær að leita að fyrirtæki til að gera við símann minn. Ég snéri ekki við strax og sjá hvers kyns var heldur fór áfram án þess að hugsa. Var þó upplýstur þarna um fyrirtæki í Bolholti 4, Smartfix, sem svo leysti vandann strax og ég kom þangað og ekki í margmenni.
Þar var pakkað af fólki og nóg af skiltum um 2 metra reglur sem voru svo greinilega ekki virtar. Ég gat ekki séð annað en að ítölureglan um samankominn fjölda væru víðs fjarri og hundruð manna hlypu um gólfin í Kringlunni á öllum hæðum.
Ef þetta er ekki uppskrift af hópsmiti þá veit ég ekki hvernig hún á hljóða.
Enda eru smita tölur dagsins eftir því. 17 í gær. Veldisvöxtur?
Ég var asni í gær og þarf að hugsa betur.
Ég fór í Laugar í dag og þar var fámennt. 6 manna ítala í sjópottinn.
Var ég kannski asni aftur í dag?