hingað til lands?
Getum við ekki ráðið neinu um aðstreymið? Getum við ekki gefið flugfélögum fyrirmæli?
Svo kemur fram í máli Víðis Reynissonar:
"Hælisleitendur sem hingað koma dvelja í sóttvarnahúsi á vegum ríkisins á meðan á sóttkví eftir fyrri sýnatöku við landamærin stendur.
Þetta kom fram í máli Víðis Reynissonar á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Víðir var spurður að því hvort enn vantaði aukahúsnæði fyrir hælisleitendur sem þurfa að fara í tvöfalda sýnatöku við komuna til landsins. Hann sagði að búið væri að leysa það mál með tilkomu sóttvarnahúsnæðisins. Eftir síðari sýnatöku tækju síðan önnur úrræði á vegum Útlendingastofnunar við.
Þá sagði Víðir að allt væri gert til þess að þjónusta hælisleitendur eftir fremsta megni og meðal annars væri tekið tillit til þess að margir úr þeim hópi hefðu ekki tök á að greiða fyrir fyrri sýnatöku við komuna til landsins.
Hann áréttaði að þessari aðferð væri beitt gagnvart hælisleitendum þar sem margir í þeim hópi væru með undirliggjandi sjúkdóma og úrræðið tryggði þannig frekar öryggi þeirra."
Það er nokkuð ljóst að hælisleitendur hafa ekki áhuga á að greiða neitt fyrir sýnatökur þar sem þeir eru að koma til að leggjast upp á okkar útveg.
Af hverju erum við yfirleitt að hleypa þeim hingað?
Skilja allir ástæðuna fyrir stöðugum komum þeirra þegar við getum ekki tekið við fleirum?