Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Er Reykjavíkurborg skaðabótaskyld?

$
0
0

fyrir þann stórkostlega skaða sem hún er búin að valda á Háspennumöstrum  okkar Landsvirkjunareigenda með sýruútblæstri frá Hellisheiðarvirkjunum. Óathuguð eru tjón sem virkjunin er búin að valda á lungum þeirra sem hafa andað óþverranum að sér.

Háspennumöstrin eru orðinn kolryðguð og tærð til óbóta í kringum þessa gufulausu virkjunarómynd sem getur aldrei borgað sig niður og verða eilífðardrápsklyfjar á reykvískum skattgreiðendum. 

Við eigendur Landsvirkjunar eigum að fá möstrin okkur borguð af skaðvöldunum. Landlæknir á að rannsaka áhrifin á líf og heilsu fólksins í kring og hvað eigi að gera í  þeim málum. Það á að loka þessari virkjun og niðurdælingarvitleysunni til hagsbóta fyrir almenning sem borgar brúsann.

Hörður verður að gyrða sig í brók og sækja skaðabætur til skaðvaldsins sem er Reykjavíkurborg.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922