ríður enn húsum.
Almenningur vill ekki sjá neitt af þessum gersamlega óþarfa.
Besta Leiðin, Strætó þjónar þörfinni fyrir almenningssamgöngur mikið meira en nógu vel með mest galtómum glæsivögnum sem nýta ekki metanið úr Álfsnesi sem er bara brennt út í loftið frá milljarða jarðgerðar og gasgerðarstöðinni.
Fólkið sjálft hefur þegar valið einkabílinn sem sinn samgöngumáta að 95 % hluta enda nútíma lífsmáti ekki framkvæmanlegur öðruvísi sem allir sjá aðrir en sveitarstjórnarmenn.
Það sem verður að gerast er að koma þessum fáránlega meirihluta sem er við völd í Reykjavík í krafti minnihluta atkvæða frá. Það eru þeir DayBee og Holu-Hjálmar sem eru að neyða 100 milljarða dellufjárfestingu upp á skattgreiðendur ofan á skuldum hlaðinn Borgarkassann. Aðeins Ásgerður frænka mín á Nesinu hefur nægilegt bein í nefinu af bæjarstjórum til að segja Stopp!
Það er búið að birta fyrstu myndina af fyrirbrigðinu Borgarlína. Það virðast vera rauðleitir samtengdir strætóar með bleikar hjólahlífar. Þvílík snilld!
Er ekki hægt að efna til undirskriftalista gegn þessu Borgarlínubulli þeirra kumpána
áður en allir þessir milljarðar tapast?