Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Verðugur bandamaður

$
0
0

Egilsbræðra í ritsóðaskap og mannorðsmorðum er Helga Vala Helgadóttir.

Kona sem sýgur til sín opinbert fé undir því yfirskyni að hún sé að hjálpa vesalings hælisleitendum. Uppfull af hræsni yfir örlögum byssubófa í Bandaríkjunum.

Af henni segir svo:

"

Helga Vala Helgadóttir skrifar grein á leiðarsíðu Moggans. Það er ekkert nýtt. Í dag beinir hún spjótum sínum af afli að ritstjóranum Davíð Oddssyni. Og dregur hvergi af sér.

„Fjöl­miðlar eru afar mik­il­væg­ir í lýðræðis­legri umræðu. Vönduð fjöl­miðlaum­fjöll­un er hvort tveggja upp­lýs­andi sem og hug­vekj­andi en að sama skapi get­ur óvönduð fjöl­miðlaum­fjöll­un bein­lín­is verið meiðandi og af­vega­leiðandi,“ 

„Höf­und­ur einn, sem ít­rekað rit­ar í Morg­un­blaðið, ger­ist iðulega sek­ur um rökþurrð og af­vega­leiðslu í skrif­um sín­um. Slík er ásókn hans í stund­ar­at­hygli, enda gleymd­ur mörg­um, að hann ger­ir allt sem hann get­ur til að kasta fram sora huga síns bara til að vekja umræðu og fá þá at­hygli sem hann þráir mest af öllu. Sneypt­ur var hann send­ur í út­legð frá op­in­ber­um störf­um eft­ir af­glöp sín í Seðlabanka Íslands. En sæ­greif­ar, sem byggja auð sinn á sam­eig­in­leg­um auðlind­um þjóðar­inn­ar, réðu hann til starfa svo hann fær að rita mola er kall­ast Stakstein­ar.“

 

„Í stein­um gær­dags­ins op­in­ber­ast þekk­ing­ar­leysi höf­und­ar á bar­áttu svarts fólks í Banda­ríkj­un­um. Vit­inu virðist naumt skammtað þar sem gert er lítið úr mót­mæl­um þar í landi sem og á fjöl­menn­um sam­stöðumót­mæl­um á Aust­ur­velli. Höf­und­ur skil­ur yf­ir­leitt ekki mót­mæli, og alls ekki að þau mót­mæli sem nú eiga sér stað vegna morðs lög­reglu­manns á George Floyd snú­ast um annað og meira en það ein­staka morð. Höf­und­ur hefði bet­ur spurt ein­hverja af þeim af­bragðsblaðamönn­um er starfa á Morg­un­blaðinu svo hann yrði sér ekki til háðung­ar en því miður valdi hann í staðinn að ausa út fá­fræði sinni í stein­um blaðsins.“

„Mót­mæl­in, og sam­stöðumót­mæl­in sem breiðast nú út um heim­inn, eru vegna of­beld­is, ras­isma og mis­rétt­is gagn­vart mörg­um kyn­slóðum svartra íbúa lands­ins. Ræt­urn­ar liggja í margít­rekuðu of­beldi lög­regl­unn­ar gagn­vart svörtu fólki í Banda­ríkj­un­um. Þannig er svart fólk þre­falt lík­legra til að láta lífið af völd­um lög­reglu en hvítt fólk þrátt fyr­ir að vera aðeins um 13 pró­sent íbúa. Þá verður að hafa í huga að um­tals­vert fleira svart fólk er drepið af lög­reglu þar í landi fyr­ir það eitt að vera á röng­um tíma á vegi lög­regl­unn­ar en nærri fimm­falt fleiri eru drep­in af lög­reglu þar sem þau eru óvopnuð á ferð. Þess vegna er mót­mælt.“

„Stakstein­ar Morg­un­blaðsins voru í eina tíð hvöss lína flokkseig­enda­fé­lags Sjálf­stæðis­flokks­ins. Þeir voru ekki endi­lega sann­leik­s­elsk­andi eða rétt­sýn­ir enda fyrst og fremst póli­tísk­ur og oft ósvíf­inn vönd­ur flokks­ins og því skemmti­efni þeim sem hafa gam­an af póli­tísk­um dansi. Það er liðin tíð.

Í dag birt­ast stein­arn­ir okk­ur sem aum­ur þráður til að dreifa þröng­sýn­um, hat­urs­full­um og and­styggi­leg­um skoðunum ör­vænt­ing­ar­fulls fyrr­ver­andi valda­manns sem neit­ar að sætta sig við að hans tími er löngu liðinn. Von­andi nær hann að lifa bjart­ari tíma en þann sem hann nú lif­ir. Bit­ur­leik­inn er aldrei góður ferðafé­lagi.“

Þvílíkt forardíki er sálin í þessari kratakellingu. Mér finnst hún ekki standa Egilsbræðrum langt að baki sem eru þó með óþverralegustu pennum sem völ er á í þessu  landi. Hún er verðugur bandamaður þeirra í níðskrifum um Sjálfstæðisflokkinn sem í tízku er að ófrægja sem allra mest óháð því að hann ber fylgislegan ægishjálm yfir litlu ljótu flokkana sem ekkert geta nema rægt og rógborið.  


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922