alls sem kemur nálægt Sjálfstæðisflokknum er nýkommúnistinn Gunnar Smári Egilsson, oft kallaður fjögurrablaðaSmári eftir risagjaldþrot sem hann stóð að meðan hann var kapítalisti, bjó Í Arnarnesi innan um feitu kettina, og þénaði undir Jón Ásgeir og Baug sem svo endaði með stærsta fallítt Íslandssögunnar.
Sýnishorna af innréttingu sálarinnar og mannhatrinu:
"Sjálfstæðisflokkurinn safnar gögnum um þá sem flokkurinn telur sig þurfa að varast. Það sést ágætlega nú á Facebook þegar innmúraðir og innvígðir birta raðir af póstum um Þorvald Gylfason, sem eiga að sýna að þar fari maður sem drýgt hefur hina stærstu synd; að beygja sig ekki fyrir flokki hinna innmúruðu og innvígðu.
Sjálfstæðisflokkurinn er fyrirbrigði líkt og Kommúnistaflokkur Austur-Þýskalands, mykjuhaugur sem laðar að sér sníkjudýr; slefbera, rógbera, valdníðinga og ofsækjendur. Það ætti að kalla saman rannsóknarnefnd Alþingis til að safna saman glæpum þessa flokks gegn almenningi og samfélaginu.