Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Gargstjórnmál

$
0
0

hafa haldið áfram frá tímum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttir sem af öllu öðrum ólöstuðum er ósvífnasti lygari og gargari sem í stjórnmálum hefur verið fyrr eða síðar.

Líf Magneudóttir kom á Hringbraut áðan með Eyþóri Arnalds. Hún hefur náð gargstílnum nokkuð vel en þar sem hún hefur ekki gáfur Ingibjargar Sólrúnar fer allt í handaskolun hjá henni. Hún hefur ekki gripsvit á tæknimálum Sorpu og blaðrar því út í eitt um hluti sem hún skilur ekki. Hún heldur því fram að Sorpa sé byggð á þrautprófuðum fyrirmyndum frá öðrum löndum. Spyrillinn spurði hvort Noregur væri þá fyrirmynd. Já já með öðrum. Það er nú búið að loka Norsku stöðinni skaut þá spyrillinn inn.

Líf sagði stöðina uppfylla öll umhverfisskilyrði og leysa allt sem henni var ætlað.

Eyþór spurði þá hversvegna þyrfti að byggja þessa stöð þegar niðurstaðan væri að 130.000 tonn þyrfti eftir sem áður að urða? Auðvitað gargaði Líf bara meira og hærra svo Eyþór komst lítið að að spyrja útí metanið sem enginn notar. En Líf bara gargaði enn hærra um kosti metans sem umhverfisvæns eldsneytis sem engu máli skipti að væri ónothæft.

Auðvitað blasir það við öllum  að moltu-og gasgerðarstöðin er bull frá upphafi og verður að breyta í brennslu-og orkunýtingarstöð hið fyrsta svo að hætta megi villimannlegri sorpurðun á hundruðum þúsunda tonna sem eyðileggur landið til kynslóða.

Það er ekki von á góðu með stjórn Reykjavíkurborgar sem safnar einum 2  milljörðum á mánuði í hallarekstur og skuldir og hefur 50 aðstoðarmenn fyrir Borgarstjórann sem tryggja það að enginn Borgarbúi geti fengi viðtal við hann eða nokkur geti spurt hann út í ábyrgð hans á bröggum sem öðru því hann er alltaf stikkfrí og vísar á aðstoðarmennina. Hann úthlutar lóðum undir fátækrabyggðir þar þrátt fyrir samninga um að selja lóðirnar á markaði. Ekkert er heilagt hjá þessum manni sem rekur linnulaust stríð gegn borgurunum eins og sést á Laugavegslokununum í andstöðu við alla sem að koma. 

Svona liðsmaður eins og Líf Magneudóttir eru svona stjórnmálamönnum eins og Degi B. Eggertssyni nauðsynlegir ef þeir halda að þeir geti áfram blekkt fólk til fylgis við sig.

Prúðmenni eins og Eyþór Arnalds eiga í vök að verjast fyrir svona dónum eins og Líf þar sem hæverskan er þeim fjötur um fót gegn slíku götuliði.  Gargstjórnmálin hafa síður en svo látið undan síga þótt Ingibjörg Sólrún hafi fjarlægst því vinstri bullukollarnir hafa hvergi gefið eftir.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922