Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Fréttablaðið

$
0
0

skarar fram úr yfirleitt í ógáfulegum boðskap sem á prentmiðlum sést.

KolbrunBergþors@hafskipshelgi.globalisti skrifar svo:

Kolbrún Berþórs @helgimagnusson telur sig hafa vit á við hundrað milljón Bandaríkjamenn sem kusu Trump sem forseta.Hvaðan kemur henni og Hafskips Helga sú vizka að láta Kollu skrifa svona:

 ,,getu­leysi for­setans [er] æpandi nú þegar voldug mót­mæli skekja Banda­ríkin vegna grimmi­legs morðs hvíts lög­reglu­manns á blökku­manninum Geor­ge Floyd." Rétt eins og karlinn í Hvíta húsinu geti að því gert að hvít lögga drepi þeldökkan og úr verða óeirðir."

Palli bloggkóngur segir svo:

"Kolbrún og frjálslyndu vitringarnar létu sér vel líka þegar Clinton, Bush og Obama deyddu þúsundir í miðausturlöndum og ófáa í Austur-Evrópu í nafni frelsis og vestrænnar menningar. Enginn Floyd-ari tekinn á dauða þúsunda sem fórnað var fyrir frjálslyndið.

En Kolbrún hittir naglann á höfuðið þegar hún talar um ,,voldug mótmæli". Og það er mergurinn málsins. Pólitíska heimsþorpið kveikir ,,voldug mótmæli" til veita ólund frjálslyndra vinstrimanna útrás. Pólitíska heimsþorpið er brunarústir alþjóðahyggju sem færði heimsbyggðinni eymd og volæði hvíts rasisma í dulbúningi vestrænnar menningar. Þökk sé Trump að stúta rasisma alþjóðahyggjunnar."

Af hverju eru rán og gripdeildir og ofbeldi völdug mótmæli?

Eru þetta ekki glæpsamleg athæfi en ekki mótmæli í Austurvallarstíl?

Er það ekki bara Kolluklikkun í Fréttablaðinu að sjá ekki muninn á þessu tvennu?

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922