var fæddur árið 1209.
Framan af ævi vildi hann sem minnst blanda sér í deilur höfðingja. En sem títt er um slíka menn þá var hann sóttur til forystu vegna hæfileika sinna.Hann er óumdeilanlega maður mikilla örlaga og áhrifa.
Árið 1253 eftir 22.október kvað hann þessa vísu:
Enn mank böl þats brunnu
Bauga Hlín og mínir,
skaði kenni mér minni,
minn, þrír synir inni.
Glaður munat Göndlar röðla
gnýskerðandi verða,
brjótur lifir sjá við sútir
sverðs, nema hefndir verði.
Hvernig maðurinn hélt viti eftir þessa Heljar atburði er eiginlega ofvaxið mínum skilningi. En hann var mikill borði segir Sturla Þórðarson um hann og líklega sízt ofmælt.
Margir lutu í gras í eftirmálum Flugumýrarbrennu.
Gizur Þorvaldsson lifði til 1268, er hugsanlega grafinn, aðeins 59 ára gamall, í Viðey en ég veit ekki hvort hann á beina afkomendur meðal okkar.