er níræður í dag.
Þessi maður hefur fylgt mér í gegn um lífið allt frá því að ég fékk fyrsta svart hvíta sjónvarpið líklega 1963 eða 4 sem náði Rawhide þáttunum í Kanasjónvarpinu.
Þar var ein persónan Rowdy Yeates, ungur sláni lék ráðsnjallan káboj.
Svo komu Spaghetti Vestrarnir hjá Sergio Leone þar sem Clint var töffari með vindilstúf í kjaftinum sem sallaði vondu gæjana niður með hjálp Lee VanCleef og Eli Wallach sem voru líka hrikalega töff. Svo kom röð af myndum sem ég sá ekki einu sinni. Dirty Harry , stríðsmyndir og allt það.
Hæst fannst mér hann Clint samt rísa í myndinni Unforgiven sem hann framleiddi og lék aðalhlutverkið í. Hrikalega töff mynd þar sem hann í hlutverki margfalds morðingja sem er orðinn bánkur bóndi og ekkill sem heyrir um að einhverjar hórur í einhverjum fjarlægum bæ hafi heitið verðlaunum til manna sem vilja drepa stráka sem höfðu unnið þeim mein.
Hann fer því að rifja upp gamla hestamennsku og byssufimi sem hann er búinn að týna niður fyrir löngu síðan og er svo klaufskur að maður veltist um að hlæja.
Hann leggur svo upp í langferð með öðrum manni til að ná í gullið og drepa strákana. Ævintýrin eru endalaus og brútalítetið er svakalegt.
Í einu atriðinu þar sem þeir eru að stúta einum af strákunum segir við hann við upprennandi en í grunninn huglítinn byssumann: "It is a helluwa thing to kill a man, take away everything he has got and will ever have."
Þegar hann i myndinni er búinn að sloka í sig hálfa viskíflösku rennur á hann hæfilegt drápsæði sem hann notaði fyrr á tíð til að myrða konur og börn að hans eigin sögn.
Myndina hef ég séð nokkrum sinnum og finnst hún alltaf góð.Myndin endar á því að dráparinn Willam Munney leysist upp og hverfur úr sögunni sem smákaupmaður í Californiu.
Clint hefur víst líka verið alvöru lögreglustjóri og í pólitík meðfram kvikmyndastörfunum.Hann er líklega gamaldags patríót eins og John Wayne var.
Hann er samt að mínu viti einn fjölhæfasti listamaður í kvikmyndum sem nú er uppi og hefur held ég filmað á Íslandi.
Ég vildi bara að að ég gæti óskað Clint Eastwood til hamingju með afmælið og megi hann lengi lifa með þökkum fyrir allt sem hann hefur fyrir mig gert allt lífið.