Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Pétur Einarsson

$
0
0

lögfræðingur og fyrrum Flugmálastjóri er allur.

Hann leyfði fólki að fylgjast með dauðastríði sínu á Facebook. En þar sem ég er þar lítið fóru veikindi hans fram hjá mér þar til að ég heyrði um lát hans. En kvalir hans voru hræðilegar en hetjuskapur hans því meiri sem þær uxu.

Ég hafði kunningsskap við Pétur í eina fjóra áratugi.Sótti skólann til atvinnuflugprófs-og blindflugs hjá honum 1978 og sat Pétur forstjórinn sjálfur í námskeiðinu með okkur. Síðar þurfti ég að leita til hans sem Flugmálastjóra þegar ég var að byggja flugskýli í Fluggörðum. Öll voru þessi samskipti á einn veg, röskleg, lipur  og vinsamleg.

Samskipti okkar voru lítil á síðustu áratugum en mér heyrðist að stundum hefði verið á brattann að sækja hjá honum í einkalífi.Enda maðurinn stórbrotinn að allri gerð.

En ég minnist Péturs Einarssonar  með vináttu og virðingu og votta eftirlifendum hans samúð mína. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922