þingmaður Sjálfstæðisflokksins skrifaði herhvatningu til Alþingis um málefni Reykjavíkurflugvallar á komandi kjörtímabili. Tveimur dögum fyrr hafði Guðni Ágústsson skrifað brýningu til þingmanna í sömu átt. Þau telja að atbeini Sumarþings Alþingis verði að koma til ef bjarga eigi flugvellinum úr klóm DagsBé, EssBjarnar og Hjálmars grimma af Borgartúnum og Grensási
Brennandi í andanum skrifaði ég póst til fimm þingmanna sem standa mér hvað næst og óskaði stuðnings við hugmyndir Elínar og Guðna.
Ekki eitt einasta svar barst.
Hvernig eiga stjórnmálaskýrendur að túlka þetta? Er Elín úti í kuldanum? Er það fíbjakk að vera á sama máli og framsóknarmaður, að maður tali ekki um ef hann heitir Guðni til viðbótar? Á ég ekki að vera ónáða þingmenn með eigin pexi? Á kjósandi ekki frekar að bíða eftir að þeir kalli Ketil skræk?
Sorrí Elín mín Hirst, ég sé málið ekki hreyfast ennþá.