haustkosningar eða ekki:
1. Piratar ætla að hækka skatta strax um 100 milljarða.
2. Píratar ætla að hækka auðlingjalda á sjávarútveginn.
3. Eygló Harðardóttir sagði:„Ný ríkisstjórn án aðkomu Sjálfstæðisflokksins, varðhunds auðvaldsins, og hreinsun í stjórnkerfinu ætti að leiða til þess að átök lægi.“
4.Eygló Harðardóttir sagði:„Það hafa verið mikil átök. Stundum jafnvel slagsmál við samstarfsflokkinn um framlög inn í velferðarkerfið."
5. Eygló vildi: „sérstakan Endurreisnarsjóðs sem getur bæði lánað fyrirtækjum og keypt hlutafé í þeim“
6. Sigmundur ætlar að koma aftur.
7. Sigurður Ingi virðist ekki ætla að gera sig breiðan.
8. Margar skattalækkanir og framfarir eru fyrirhugaðar í vetur. Koma þær til framkvæmda með haustkosningum?
9. Makríllinn er að byrja. Eigum við að ráða eða aðrir?
10. Náttúrupassinn er óafgreiddur. Liggur ekki á lausn?
11. Er ekki betra að hafa Eygló undir eftirliti?
12.Græða núverandi stjórnarflokkar á haustkosningum?
Með haustkosningum færist valdataka Pírata, Eyglóar og kommúnista nær.Með vorkosningum hefur skynsemin og núverandi stjórnarstefna völdin hátt í ári lengur. Vika er langur tími í pólitík.
Það bendir ekki til þess í skoðanakönnunum að kjósendur ætli að þakka fyrir eitt né neitt sem gert hefur verið af hálfu núverandi stjórnarflokka. Miklu fremur hefur hallað á þá í áróðursstríðinu og minni kjósenda slævst.Lygarnar hafa eflst og magnast.
Hvað segir lógíkkin þá um haustkosningar?