og bregður sér hvorki við sár nmé bana eins og fornkóngar. Hann slær ekki af í störfum sínum en andskotast um heiminn allan þó hann sé í áhættuflokki.
Ferðabann Bandaríkjaforsetans Donald Trump vegna COVID-19 hefur vakið mikla athygli á Íslandi í dag, og raunar um allan heim. Gabriel Stargardter, blaðamaður Reuters, bendir á að forsetinn gæti sjálfur hafa smitast af veirunni alræmdu.
Gabriel bendir á þetta á Twitter síðu sinni en þar deilir hann mynd af Trump ásamt varaforsetanum Mike Pence og brasilískum embættismanni að nafni Fabio Wajngarten. Grunur lá á að Fabio væri smitaður af veirunni en nú er búið að greina frá því í erlendum fjölmiðlum að Fabio er með COVID-19.
Myndin sem um ræðir er, að sögn Gabriel, tekin fyrir fimm dögum síðan og því gæti þessi Fabio hafa smitað Donald Trump af veirunni.
Undir tísti Gabriels benda margir á að Trump er í áhættuhópi vegna veirunnar sökum aldurs en hann er 73 ára gamall. Þá eru viðbrögðin við tísti Trump misjöfn en sumir vona að Bandaríkjaforsetinn hafi fengið veiruna. „Þetta eru frábærar fréttir ef satt reynist,“ segir notandi nokkur.