Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Sjálftaka bandíttanna

$
0
0

á Alþingi lítur svona út:

Björn Valur Gíslason, fyrrverandi alþingismaður, setti þetta á vefinn:

Þingmenn ræddu fátækt og lág laun á Alþingi í dag í kjölfar sjónvarpsþáttar um sama efni í gær. Það er gott.
Hér má sjá launaþróun á fastakaupi þingmanna frá ársbyrjun 2010 til 2020.

 

Hvað er þetta Alþingislið annað en ótíndir bandíttar? Hvernig er hægt annað en að fá samúð með Sólveigu Önnu og hennar ramakveinum þegar þetta viðgengst? Og Píratapakkið á táfýlunni og malbikunarjakkanum og Húsaleigusvindlinu er samsekt og ekki hótinu betra.Og Inga Sæland sleikir út um með þeim og blaðrar um fátæktina hjá hinum, sjálf er hún búin að sjá fyrir sér.

Hvernig í veröldinni heldur þetta lið að það geti náð sátt í þjóðfélaginu með svona svívirðilegri hegðun?

Kjör leikskólakvenna munu ekki batna fyrr en þær einkavæða leikskólana, svipað og heilsugæslustöðvarnar. Ef Sólveig Anna og félagar vilja taka leikskólann á leigu af lækninum af forréttindatorginu þar sem hann býr og leggja meira á sig þá er von um raunverulegar kjarabætur. Allar venjulegar taxtahækkanir munu verða étnar upp fyrst af verkfallskostnaði, svo af af atvinnuleysi og verðbólgu, því miður er reynslan sú.

Svo kemur þetta Alþingispakk og biður okkur um að kjósa sig fyrir næstu kosningar svo það geti haldið áfram í sjálftöku bandíttanna og öllu fríðindasvindlinu sem þarna þrífst frá fríum gleraugum og uppúr.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922