rétt þegar hann harmar gengisleysi framboðsmála Demókrata í Bandaríkjunum?
Hann segir:
"Það er ljóst af forkosningum demókrata í Bandaríkjunum í gær vegna forsetakosninganna þar í haust að baráttan er farin að snúast um Joe Biden, fyrrum varaforseta og Bernie Sanders. Hvorugur er frambjóðandi, sem líklegur er til að sigra Donald Trump í haust og þess vegna meiri líkur en minni, þegar hér er komið sögu, að hann sitji áfram í Hvíta Húsinu í fjögur ár í viðbót.
Það þýðir að fólk víða um heim, sem leit til Bandaríkjanna sem forysturíkis lýðræðisríkja áður fyrr mun ekki geta það næstu árin.
Og í því er fólgin mikill veikleiki á sama tíma og alræðissinnar vaða uppi hér og þar."
Fyrri hluti klausunnar er rökrétt ályktun. Trump hefur þegar markað svo djúp spor sem Forseti og bætt kjör svo margra Bandaríkjamanna að hann er vandsigraður af sósíalískri hagfræði. Hann hefur líka sloppið merkilega vel frá alþjóðamálum til þessa svo ekki verða sigrar Demókrata unnir þar.
Mér finnst ályktun Styrmis í næst síðustu setningunni vera í litlu samhengi við það sem fram fer í heiminum.