á fimm ára starfsafmæli frá útey í dag.
Á þessum fimm árum sem liðin eru þá finnst mér ég hafa séð mikinn fréttaflutning sem tengist þessum manni. Ekki vegna þess hvað hann gerði heldur vegna allskyns deilna um réttindi hans sem fanga. Hann krefst þessa og hins á grundvelli mannréttinda að manni skilst.Og allt kerfið skelfur í deilum við hann.
Clint Eastwood í hlutverki atvinnumorðingja er látinn segja við ungan og upprennandi drápara í myndinni Unforgiven. "Það er djöfuls mikill hlutur að drepa mann. Taka af honum allt sem hann á og mun nokkru sinni eiga".
Ég veit ekki hvað öðrum finnst um þennan mann Breivik. En fyrir mér tók hann allt af tugum saklauss fólks án þess að spyrja leyfis og án gilds tilefnis að dómi flestra. Hvað gerir hann að manni eftir þetta sem hefur alls kyns réttindi? Er hann ekki frekar eins og óður hundur sem í stað þess að vera lógað strax er settur í geymslu? Þar fær hann það sem hæfir óðum hundi sem ekki skilur atferli sitt vegna ólæknandi sjúkdóms síns. Gæslu, mat, bæli og skammtaða útiveru. Ber honum eitthvað fleira?
Víst er að upp eiga eftir að koma álitamál þar sem fjöldadráparar koma við sögu. Hvað á að gera við þá sem sannarlega hafa barist og drepið í röðum ISIS? Hvað réttindi eiga þeir að fá við heimkomuna? Hvað ætlum við að gera þegar slíkt verður lagt fyrir okkur?
Á sínum tíma var sjóránum útrýmt með aðferðum sem væru ekki leyfðar dag. Þau hurfu. Hvernig mun okkur ganga að eiga við sveitir sem lúta öðrum siðferðislögmálum en við gerum? Flytjast okkar hugmyndir um mannréttindi yfir á þá ef við ráðum? Myndu þeirra hugmyndir um siðferði ekki flytjast yfir á okkur ef þeir fengju að ráða?
Svo hvað á að gera? Flestir munu segja að ekki tjói að bjóða fólki eins og Breivik hinn vangann eða rétta óðum hundi hinn fótinn eftir að hann hefur bitið í þann fyrri. Hvernig stöðvaði franska lögreglan fjöldamorðingjann í Nice? Erum við undirbúin?
Byssan er eini vinur hermannsins sagði maður sem hafði verið á vígstöðvunum í Rússlandi. Hvað sem okkur kann að finnast um vopn þá eru þau til. Það skiptir öllu máli hverjir halda á þeim. Breivik var rangur maður með byssu á röngum stað og auk þess í lögreglubúningi. Aðeins góður maður með byssu á sama stað hefði getað breytt einhverju.
Verðum við ekki ávallt að búast við Breivik?