Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Þjóðaröryggisráð

$
0
0

ætti það ekki að fjalla um lausn á bráðamóttökuvandanum?

Er ráðið ekki fært um að taka slíkt mál fyrir og leysa það? Er ekki einskonar stríðsástand og óöryggi á ferðinni?

Ég þurfti að koma á þessa móttöku á síðasta ári oftar en einu sinni. Mér sýndist talsverður hluti af vandanum vera dópistar sem lágu þarna ælandi í fráhvörfum og dópleysi  og til vandræða fyrir alla aðra.  Ef þeir væru skildir frá öðrum veikindum myndi strax rýmkast til. Setja upp sérstaka gáma fyrir utan fyrir þessa vesalinga sýndist manni koma til greina sem fyrsta bráðabirgðaúrræði. 

Yrði ríkisstjórninni nokkur skotaskuld úr að útvega peninga til að styrkja ferlið í þessari neyð? Er ekki spítali í Hafnarfirði sem hægt er að grípa til í svona stríðsástandi þar sem sjúklingar liggja svefnlausir á Landspítalagöngum? 

Þarf ekki að gera eitthvað í málunum sem varðar þjóðaröryggi sem þetta?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922