Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Kverkatak klerkanna

$
0
0

á Írönskum almenningi? Hefur það herst við aftöku Solemaneis?

Khameini er illþýði af fyrsta klassa og blóðhundur. Klerkastjórnin er fasistastjórn sem kúgar allt með morðum og ofsóknum í Hitlerskum og Stalínskum stíl. Hundraðþúsund syrgjendur á torgi segja ekkert um það hvað almenningur er að hugsa. Mér er nær að halda að fýsin til að deyja fyrir klerkastjórnina sé kannski ekki dýpri en aðdáunin var á Hitler í Hamborg. Maður bara veit ekkert með internetið í Íran lokað og allar sannar fréttir kyrktar.

Verður bylting í Íran eða geta þeir klerkarnir og þjóðvörðurinn drepið nógu marga andstæðinga nógu hratt til að halda lokinu á suðupottinum? 

Ég finn til algers vanmáttar í upplýsingaleysi að skilja ástandið sem ríkir í Íran. Hver getur leiðbeint manni? RÚV? Helga Vala?

En klerkarnir hafa kverkatak sem stendur.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922