var Sulemanei,íranskur hershöfðingi, í Írak? Hélt hann á olíuviðargrein í friðarferð? Vissi hann af árásinni á bandaríska sendiráðið þegar hún var gerð? Var hann í Baghdad þá? Hafði hann engan þátt tekið í aðgerðum gegn Bandaríkjunum? Var þetta blásaklaus maður í allra augum?
Þrátt fyrir allt er það fremur óvenjulegt að herir reyni að drepa yfirmenn í andstæðingahernum.En Sulemanei var á hryðjuverkalista og eftirlýstur. Fyrir liggur að fyrri Bandaríkjaforsetar höfðu viljað hann feigan.
Hvers eðlis er ríkisstjórn Írans? Hvaðan kemur henni umboð til að hafa mann eins og Sulemanei í sinni þjónustu? Hverjir eru að mótmæla í Íran svo kröftuglega að stjórnvöld loka á Internetið?
Hvernig geta Þorbjörg Helga og Birna Anna kallað Trump Bandaríkjaforseta lygara og fífl sem geti ekki tekið rökrænar ákvarðanir? Sé bara að draga athyglina frá eigin vandamálum heimafyrir með stríðsaðgerðum í Irak.
En hverra erinda eru aðrar þjóðir í Mið-Austurlöndum?