þá er maður ekki lengur á höfuðbólinu heldur í hjáleigunni.
Samkvæmt könnuninni fengi Samfylkingin 19,0 prósenta fylgi, Sjálfstæðisflokkurinn 17,6 prósent og Viðreisn og Píratar fengju hvor um sig 14,0 prósent.
Miðflokkurinn mælist í könnuninni með 12,1 prósent atkvæða, Vinstri græn 11,7 prósent og Framsóknarflokkurinn 7,4 prósent.
Flokkur fólksins fengi 4,1 prósent. Samanlagt eru það 99,9 prósent.
Ekki kemur fram í frétt Stöðvar 2/Vísis hver skekkjumörk könnunarinnar eru. Hún var unnin um miðjan mánuðinn og svöruðu um 60 prósent af 914 sem haft var samband við. "
Flokkur fólksins dettur út sem er viss lækkun á flækjustiginu.En stjórnarflokkarnir eru komnir í öruggan og traustan minnihluta. Hvað sem öllum uppáliggjandi hagvísum líður.
Gengi Pírata er vaxandi og fylgi við inngöngu í ESB er þar með hugsanlega innan seilingar eftir því hvernig vindar blása í öðrum flokkum.
Jæja, þá veit maður það.