Mannfjöldi heimsins núna:
7,753,447,487
Fæðingar í dag:
209,317
Dauðsföll í dag:
87,876
Mannfjölgun í dag:
121,441
Fæðingar í ár:
138,376,395
Dauðsföll í ár:
58,093,726
Mannfjölgun heimsins þetta ár:
80,282,670
Allt bullið um loftslagsbreytingar af mannavöldum og píslir sem stjórnmálaskúmarnir og spámenn á borð við Grétu Thunberg eru sífellt að reyna að leggja á almenning vegna þeirra trúarbragða er út í loftið eins og öllum sem skoða þessar tölur hlýtur að vera ljóst. Viðbótar áttatíumilljónir manna bæta við hálfu gígatonni af CO2 og hluta af því bara með því að draga andann.
Er eitthvað annað hægt að gera en að hlusta á ruglið í IPCC? Leggja akurlendi heimsins í rúst? Hætta að nota orku?
Já.
Ég held að það sem hægt er að gera er að borga öllum sem það vilja myndarlega fyrir að láta gera sig ófrjóa. Sá fjöldi sem þannig gæti komist úr örbirgð til bjargálna gæti orðið mikill.
Ef við gætum afstýrt einhverjum fjölda af núverandi fæðingum væri mikill sigur unninn.
Sameinuðu þjóðirnar ættu að kosta þetta átak og eiga að því frumkvæði.
Ef þetta er ekki gert þá er mannkynið í mikilli hættu.