Ætlum við að hanga í blindu aftan í ESB í refsiaðgerðum gagnvart Rússum og væntanlegu viðskiptastríði þess gegn Bretum þegar Brexit verður að veruleika?
Eða ætlum við að hafa tengsli við Trump til að semja um viðskipti við Stóra-Bretland?
Ætlum við að halda áfram viðskiptaþvingunum við Rússa þegar Mutter-Merkel gerir gys að slíku sjálf með stórauknum viðskiptum?
Jón Sigurðson Forseti brýndi fyrir okkur nauðsyn frjálsrar verslunar. Af hverju höfum við þá hugsjón ekki ofar en núverandi aftaníossagang sérvizkubandalags EES og ESB?
Ætlum við okkur ekki aukin viðskipti við Breta eftir Brexit?