Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Ótrúleg tilætlunarsemi

$
0
0

birtist í grein Þórdísar Lóu í Morgunblaðinu í dag:

Þar stendur m.a.:

... Af rekstri A-hluta verður 2,5 milljarða afgangur. Til samanburðar verður afgangur af rekstri ríkissjóðs, samkvæmt fjárlagafrumvarpi formanns Sjálfstæðisflokksins, 367,4 milljónir. Tekjur vegna gjaldskrárhækkana munu ekki hækka meira en 2,5%.

Eftir langvarandi uppsveiflu spáir Hagstofan nú 0,2% samdrætti á þessu ári, fyrsta ár samdráttar frá árinu 2010 og gerir ráð fyrir „hóflegum bata“ á næsta ári með 1,7% hagvöxt.

Þetta samdráttarskeið þýðir að á næsta ári munu útgjöld Reykjavíkurborgar vaxa hraðar en skatttekjur. Við bregðumst við þessum samdrætti með því að bæta við fjárfestingar og ýta þannig undir vöxt hagkerfisins og stöðugleika. Fjármögnun þessara fjárfestinga verður 70% með eigin fé og 30% með lántökum og verður varlegar farið í ný langtímalán og leiguskuldir en síðastliðin tvö ár.

Þá verður einnig að hafa í huga að á árunum 2020 til 2024 verða afborganir lána og niðurgreiðsla skulda hærri en nýjar lántökur. Við munum greiða skuldir niður um rúma 14 milljarða hjá samstæðunni allri.."

Heldur manneskjan að lesendur séu algerlega svo skyni skroppnir að þeir skilji ekki að hún er að boða skuldahækkun?  Hún kennir um aðstæðum í þjóðfélaginu sem þá ríkisstjórnin væntanlega hljóti að bera ábyrgð á en ekki meirihlutinn í Borginni.En ég hef heyrt að vinstri meirihlutinn hafi aukið skuldir Borgarsjóðs um einn milljarð á mánuði hverjum það sem af er kjörtímabilinu meðan önnur sveitarfélög hafa lækkað skuldir sínar.

Þetta er sú kona sem meirihluti Dags og Hjálmars veltur á. Það er flokkurinn  Viðreisn sem er ábyrgur fyrir ástandinu í Reykjavík, málum umferðaröngþveitisins sem og myglumálum í byggingum Borgarinnar.Kjósendur höfnuðu þeim félögum em Þórdís setti þá inn aftur.

Það er álíka rökvísi og ósvífni við lesendur sem kemur fram í þessum skrifum Þórdísar Lóu og þegar Ingibjörg Sólrún sagði Borgarsjóð rekin hallalaust þrátt fyrir einhvern undirliggjandi milljarðs halla og komst upp með það með hjálp RÚV.

Ótrúleg tilætlunarsemi hvað varðar trúgirni kjósenda eru þessi skrif Þórdísar Lóu. 

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922