var misráðin að mínu viti.
Það er ekki höfuðatriðið að keyra í gegn um námsefnið á yfirhraða. Það kemur annað til svo sem almennur þroski.
Ég mátti ekki vera deginum yngri þegar ég kom til Þýzkalands fyrir margt löngu, tæplega tvítugur miðlungsstúdent. Ef ég hefði verið betur gefinn þá hefði þetta kannski verið í lagi. En svo var ekki þó ég hafi slampast þetta.
Ég held að æskunni veiti ekki af þessu eina ári í 5. bekk sem var til viðbótar í þá daga. Framhaldsskólinn mátti ekki vera deginum styttri í þá daga og blöndun í bekki var þaðan af vitlausari.