700 vísindamenn segja að engin hamfarahlýnun eigi sér stað.
Af hverju á ég að trúa vísindum Katrínar Jakobsdóttur og Gretu Thunberg frekar en þessu mönnum?
Hvort vill fólk trúa frekar.? Vísindalegum athugunum eða fólki sem æpir Úlfur,Úlfur!, jörðin er að farast!
Jörðin er ekki að farast þó að Landsfundur VG láti að því liggja og að Umhverfisráðherrann sem enginn kaus til þessa ætli að fara á þing til að geta betur mokað ofan í Flóaáveituna til að minnka útstreymi CO2.
Þau á Landsfundi VG slepptu að ræða hvernig þau ætla að stöðva 20 þúsund tonnin af CO2 sem streyma frá Kötlu á hverjum sólarhring eða 2 tonnin af CO2 sem þau blása út hvert um sig í hverri flugferð á loftslagsráðstefnurnar sem þykir svo gaman að sækja á kostnað skattborgaranna.
Hvort trúir þú betur Robert Lintzen eða Grétu Thunberg sem æpir bara Úlfur,Úlfur!