Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

8 Gigaton

$
0
0

af kolum brenna í  kolakyntum raforkuverum heimsins á ári. Hvert tonn myndar 2.86 tonn af CO2 sem fer út í andrúmsloftið.Nærri 23 Gigaton af þeim 37 sem heimslosunin er.

Íslendingar blása út 0.007 Gigatonnum af þessu byggingarefni lífsins á jörðinni sem CO2 er og hefur ekki verið lægra hlutfall af því í andrúmsloftinu á 600 milljón ára tímabili.Bara upp úr Kötlu stíga dag hvern 20 þúsund tonn af CO2 eða jafnmikið á ári og allir Íslendingar losa á ári hverju í sinni lífsbaráttu.

Er ekki Katrín Jakobsdóttir stórkostleg að leggja á okkur kolefnisskatta í því skyni að berjast við hamfarahlýnun jarðarinnar? 

Litla Ísland gengur fram fyrir skjöldu í baráttu hennar og trúarvísindanna með Grétu Thunberg gegn heimshlýnuninni. Umhverfisráðherrann okkar sem enginn kaus vill moka ofan í Flóaáveituna og aðra skurði til að styðja þessa baráttu.

Sagði ekki Bruno á bálinu: Oh, Sancta Simplicita.

Flytur ekki Steingrímur Jóhann bara hundraðmilljón kíló af kolum til Húsavíkur þar sem þeim er brennt án hreinsibúnaðar?

Maður verður vitlaus af öllum þessum núllum. En eru ekki 8 Gt.ekki   8.000.000.000.000 kg af kolum ekki klumpur sem er í það minnsta kílómetri á kant eða slagar upp í Esjuna?

Hvað eigum við að borga fyrir 8 Gigatonn af kolum?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922