Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Þjóðarsjóður

$
0
0

til hvers?

Af hverju á ég að taka minn sparnað, sem ég geymi til dæmis í Landsvirkjun,og geyma hann handa einhverju fólki sem ég ekki þekki og mun aldrei kynnast?

Af hverju á ég að hossast á ónýtum vegum og eyðileggja bílinn minn til þess að eitthvað fólk sem ég þekki ekki og mun aldrei kynnast geti tekið þennan sparnað minn og malbikað fyrir sig?

Af hverju á ég ekki að taka þennan sparnað minn og byggja virkjun fyrir hann núna sem lækkar rafmagnið hjá mér eftir 3 ár sem ég á sjans á að lifa?

Af hverju á ég að taka þennan sparnað minn og leggja í einhvern banka í Asíu svo að einhver ungur maður geti fengið atvinnu af að fylgjast með? Sjái u að ég fái ca. 5 % á ári í ávöxtun að greiddum kostnaði eftir 5 ár héðan frá. 15 % eftir 5 ár ef ég er heppinn og unglingurinn hefur engu tapað?

Hversvegna vil ég ekki fá að leggja sparnaðinn í arðbærar framkvæmdir strax hér innanlands sem ég get notið meðan ég lifi? Hvað veit ég hvað dellu kjósendur eru reiðubúnir að gera eftir 5 ár? Af hverju á ég að taka minn sparnað og leggja í hendurnar á þeim fíflum? Geta þau bara ekki séð um sig sjálf? Af hverju á ég að sjá fyrir þeim? Ætla þau ekkert að gera?

Af öllu þessu er þessi hugmynd um þjóðarsjóð fyrir mér algerlega galin og sem ég styð aldrei svo óskynsamsöm mér finnst hún.Hvar væri hlutur Sturlu Sighvatssonar eða Jóns Loftssonar ef þeir hefðu átt að leggja fram í varasjóð þjóðarinnar sem nýttist Steingrími J. Sigfússyni og Jóhönnu  í hruninu 2008?

Þjóðarsjóður er ekki hugmynd sem mér hugnast því ég vil fá eitthvað meðan ég lifi en ekki í eilífðinni.

 

  


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922