Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Enn þyrlar Þorvaldur

$
0
0

upp steypunni sinni í málgagni Samfylkingarinnar í morgun.

Þar segir hann eina ferðina enn:

 

".... Og hvergi nema á Íslandi rembist ólögmætt þjóðþing – kjörið 2013 skv. kosningalögum sem tveir þriðju hlutar kjósenda höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012 – við að grafa undan lýðræði með því að humma fram af sér staðfestingu nýrrar stjórnarskrár."

Á kosningavef Innanríkisráðuneytið stendur eftirfarandi:

"

Niðurstaða talningar við þjóðaratkvæðagreiðsluna 20. október 2012.

Talningu atkvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu hinn 20. október sl. um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd lauk kl. 22.40 hinn 21. október. Samkvæmt skýrslum yfirkjörstjórna voru 236.903 kjósendur á kjörskrá og greiddu 115.980 manns atkvæði.

Atkvæði féllu þannig um spurningar 1-6:

1. Vilt þú að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá?


Já,
ég vil að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá

Atkvæði        hlutföll
73.408          64,2 %

Nei, ég vil ekki að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá

Atkvæði        hlutföll
36.252            31,7 %

2. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu lýstar þjóðareign?

Atkvæði                       Hlutföll
       84.633             74,0 %
Nei
     17.441              15,2 % 

3. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi

Atkvæði                        Hlutföll
        58.354             51,1 %
Nei
      43.861              38,3 % 

4. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú er ?          

Atkvæði                        Hlutföll
        78.356             68,5 %
Nei
      21.623             18,9 % 

5. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt ?

Atkvæði                        Hlutföll
        66.554             58,2 %
Nei
      33.536             29,3 % 

6. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu ?

Atkvæði                        Hlutföll
        72.523             63,4 %
Nei
      26.402              23,1 %

Ógild atkvæði voru 1.493, þar af 661 auður seðill en 832 atkvæði voru ógilt af öðrum ástæðum.

Landskjörstjórn hafa enn fremur borist eftirrit af gerðarbókum yfirkjörstjórna. Landskjörstjórn hefur ákveðið að hún komi saman kl. 12.00, mánudaginn 29. október nk. til þess að lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Heimilt er að kæra ólögmæti atkvæðagreiðslunnar til landskjörstjórnar og skulu slíkar kærur sendar landskjörstjórn eigi síðar en tveimur dögum áður en fundur landskjörstjórnar verður haldinn. Að þeim fundi loknum tilkynnir landskjörstjórn innanríkisráðuneytinu um niðurstöður sínar. Ráðuneytið auglýsir að því loknu úrslit atkvæðagreiðslunnar í Lögbirtingablaði og Ríkisútvarpi.

Landskjörstjórn, 23. október 2012."

Atkvæðin sem stjórnarskrá Þorvaldar fékk er 73.408 en 36.252 voru á móti.

Af þeim sem voru á kjörskrá 236.903 eru já menn 78.356 eða tæp 31 % af öllum kjósendum með þessu en 15.3% af öllum kjósendum eru á móti. Þetta túlkar Þorvaldur sem þjóðareiningu um sitt nýja frumvarp til stjórnarskrár, sem á að leysa þá gömlu af sem fékk yfir 90% þjóðaratkvæða þegar lýðveldið var stofnað. Þetta reiknast prófessor doktor Þorvaldi jafngilt og að 2/3 kjósenda hafi samþykkt langlokudrögin hans.

Tekur það því að elta ólar við semantík og flautaþyrlur prófessors sem kemur einfaldlega með endurtekningu í næsta blaði  í stíl gamla dr. Jósefs og fær líklega Baugsborgað fyrir?

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922