er haldin í dag. Sá fyrsti sem hverfur af þessari óværu Íslands á landinu er OKey-Jökull.
OKey, varð landið ekki bara byggilegra við þetta?.Ekki syrgi ég þessa snjóhrúgu frekar en Glámu eða skaflinn í Gunnlaugsskarði.
En hrúgan sem hét OK-Jökull var líklega ekki til við landnám þegar Vatnajökull hét Klofajökull og var í tveimur aðskildum hlutum vegna þess hlýskeiðs sem þá ríkti í þessu landi.
Þá voru framantaldir vísindamenn aðeins þanki Guðs og engin ráð voru þá tiltæk til að skattleggja neinn til að standa fyrir nægilegri kólnun til að auka vöxt jökla sem nú teljast nauðsynlegir fyrir ferðamennskuna að minnsta kosti.
Oddur jöklafræðingur segir að Hofsjökull fari bráðum sömu leið og Okey-jökull.
Það ert mikið vel ef loftslag er að batna á þessu landi veðra og vindgangs. Landið hefur líka grænkað í seinni tíð og orðið byggilegra með hlýnuninni sem nú hefur staðið nú í nokkra áratugi.Uppúr 1960 man ég að hafís lá inn við Blönduós og tún grænkuðu ekki fyrir norðan.Þá voru þær Kata og Gréta ekki fæddar.
Hvað framhaldið verður vita engir aðrir en þeir pópúlisku vísindamenn sem nú yfirskyggja vitræna umræðu. En Katrín og kommarnir ætla að skattleggja fólkið svona til vonar og vara til að vinna gegn hnattrænni hlýnun af völdum aukins CO2 í andrúmsloftinu.
Sem eru að vísu fullyrðingar um hlýnun andrúmsloftsins af mannavöldum sem langt frá er samstaða um í vísindaheiminum að sé að eiga sér stað.
Nú er að hefjast sólsveifla nr. 25. Margt bendir til þess að hún geti líkst sólsveiflu 14 sem var mun kaldari.
Allt þetta heimsendatal vísindamanna á borð við Gretu Thunberg, Katrínu Jakobsdóttur, Gunnars, umhverfisráðherra vors sem enginn kaus, og þeirra OKey-hátíðarmanna er með þeim hætti að ekki fylgir mikil sannfæringarkraftur fyrir venjulegt fólk fyrir ágæti trúboðsins.
Meðfylgjandi myndir sýna ágætlega hversu lítill maðurinn er og núið hans stutt í jarðsögunni.CO2 innihald í andrúmsloftinu hefur til dæmis ekki verið lægra í 800 milljón ár. Á þeim tíma gerðist jörðin græn og byggileg og hlýnunin um 1 gráðu á síðustu 200 árum hefur gert kleyft að standa undir fæðuframboði sem gerir jörðinni kleyft að fullnægja fæðuþörf fyrir marga milljarða fólks sem bæst hafa við til að rányrkja jörðina eins og nú stendur yfir.
Fólksfjölgun hjá þeim fátæku og menntunarlausu stefnir lífi á jörðinni til tortímingar á næstu öld ef ekkert verðu gert til að draga úr henni.
En að kaupa fólk til takmörkunar barneigna er það sem S.Þ þurfa að gera fyrir jörðina en ekki það koltvísýringsbull svokallaðra vísindamanna sem við erum að moka fjármunum í núna. En þeir hafa sent frá sér ályktun um að breyta landi á stærð við Brasilíu úr akurlendi yfir í skóglendi til þess að minnka CO2 í andrúmsloftinu. Bullið er yfirgengilegt í ljósi mannfjölgunarinnar sem þarf mat. Og okkar Gunnar sem enginn kaus ætlar að moka ofan í Flóaáveituna í sama tilgangi.
Það er hátíð þegar Okey-jökull hverfur og Ísland verður byggilegra meðan Grænlandsjökull stækkar og þunginn þrýstir skriðjöklum í sjó fram sem hugsanlega fljóta til Blönduóss.