Björn minn hæstvirtur?
Þú skrifar eftirfarandi :
"Hvað þarf til að blása þessa vitleysu út af borðinu er vandséð þegar til þess er litið að andstæðingar þriðja orkupakkans hafa staðreyndir að engu en magna með sér ótta með eigin ímyndunum. Það hefur til dæmis aldrei fengist svar við því í hverju valdaframsalið með þriðja orkupakkanum felst.
Sérkennilegt er að sjá hvernig rangfærslunum um þriðja orkupakkann er sérstaklega beint gegn Sjálfstæðisflokknum, formanni hans, forystumönnum og flokksmönnum. Gengur þetta svo langt að nú er það talið til brota á lýðræðisreglum að ágreiningsmáli á fundi sé vísað til meðferðar stjórnar af meirihluta fundarmanna. Og vísindamaður segir í blaðagrein: „Ég væri hins vegar reiðubúinn til þess að leggja mikið á mig til þess að þróa lyf sem hjálpaði mönnum að ná áttum og ganga úr [Sjálfstæðis-]flokknum.“ Falla yfirlýsingar af þessu tagi undir siðareglur þeirra sem þróa lyf?"
Hvað þarf til til þess að þú farir að lýsa kostunum sem fylgja því að blása "þessa vitleysu" út af borðinu og semja frið í Sjálfstæðisflokknum?