Bjarnason í Orkupakkamálinu. Hann neitar öllu öðru en að samþykkja pakkann af því hann sé skaðlaus.
"Í lok Staksteina áréttar blaðið þá skoðun sína að með stuðningi við þriðja orkupakkann hafi þingflokkur sjálfstæðismanna ályktun landsfundar að engu og að Bjarni Benediktsson hafi horfið frá yfirlýsingum sínum „á þingi um orkupakkann og enn skýringarlaust“ eins og segir í ritstjórnardálkinum.
Ályktun landsfundarins sem þarna er nefnd snerist um andstöðu við framsal á valdi. Ekkert slíkt felst í tillögum sem nú liggja fyrir alþingi frá ráðherrum Sjálfstæðisflokksins og þingflokkur þeirra hefur samþykkt.
Bjarni Benediktsson hefur oftar en einu sinni skýrt umræddar yfirlýsingar sínar á þing. Hann gaf þær á alþingi þegar hann svaraði fyrirspurn Þorsteins Víglundssonar, þingmanns Viðreisnar, um hvað fælist í landsfundarályktun sjálfstæðismanna. Bjarni skýrði efni ályktunarinnar og þar með andstöðuna við framsal á valdi í orkumálum. Stuðningur við þriðja orkupakkann gengur hvorki gegn orðum flokksformannsins né ályktun landsfundarins. Það hefur margsinnis verið skýrt á skilmerkilegan hátt.
Í tilefni af öllu þessu skal hér ítrekuð spurningin: Hvert er valdaframsalið? Þrjár greinar í Morgunblaðinu þriðjudaginn 30. júlí 2019 geyma því miður engar skýringar á þessu lykilatriði. Ein er til stuðnings upprisu Miðflokksins, önnur um andstöðu við EES og sú þriðja um skort á umræðum innan Sjálfstæðisflokksins. Það leynist margt í þriðja orkupakkanum en þó ekkert valdaframsal."
Björn hefur þó ekki skýrt hvaða kostir fylgja samþykkt pakkans. Hvað samþykktin muni kosta Sjálfstæðisflokkinn í stað þess að beygja hjá?
Þar er Björn aðeins þversum og afþvíbara.