Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

19 %

$
0
0

 er hið nýja fylgi Sjálfstæðisflokksins.

Svo segir í Mogga:

Miðflokk­ur­inn er há­stökkvari nýrr­ar skoðana­könn­un­ar sem MMR birti í dag. Flokk­ur­inn mæl­ist með 14,4% fylgi og yrði þriðji stærsti flokk­ur­inn ef boðað yrði til kosn­inga í dag.

Að sama skapi lækk­ar fylgi Sjálf­stæðis­flokks­ins um rúm 3 pró­sentu­stig og mæl­ist hann nú með 19,0% fylgi en er þó eft­ir sem áður stærst­ur flokka.

Pírat­ar eru næst­stærst­ir, en 14,9% kjós­enda hyggj­ast greiða flokkn­um at­kvæði, litlu fleiri en í síðustu könn­un. Skammt und­an er Sam­fylk­ing­in, sem mæl­ist með 13,5% fylgi og tap­ar rúmu pró­senti frá síðustu könn­un.

10,3% kjós­enda styðja Vinstri græn, pró­senti minna en síðast, og 9,7% Viðreisn sem er á pari við síðustu könn­un. Þá mæl­ist fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins 8,4% en var 7,7% í síðustu könn­un.

Flokk­ur fólks­ins og Sósí­al­ista­flokk­ur Íslands næðu ekki mönn­um á þing ef þetta yrðu niður­stöður kosn­inga, en hvor flokk­ur um sig nýt­ur stuðnings rúm­lega 4% kjós­enda.

Könn­un­in var fram­kvæmd dag­ana 4. til 17. júlí og voru svar­end­ur 2.031, vald­ir af handa­hófi úr hópi álits­gjafa MMR úr þjóðskrá."

 Eftir 3. september hlýtur fylgi Sjálfstæðisflokksins  að ná áður óséðum stærðum þegar Íhaldið sameinast Viðreisn og hinni Samfylkingunni um 3. orkupakkann.

19 % núna en getur breyzt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922