Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Ekki stóð á RÚV

$
0
0

að velta sér upp úr skít lyga, rangfærslna og falsana á orðum Trump Bandaríkjaforseta.  Hann sagði einfaldlega á Twitter  að þeir sem hötuðu Bandaríkin væru frjálsir að því að fara.Þetta varð RÚV ástæða til að ráðast gegn Forsetanum og skjóta úr báðum hlaupum um að hann væri rasísti eða verra.

Demókratahyskið byrjaði auðvitað að snúa út úr og reyna að æsa fólk gegn Forsetanum. Sem var aðeins að segja að Bandaríkin væru frjálst land og þeir sem ekki vildu búa þar og hötuðu þau stjórnmálalega  gætu farið annað.

Auðvitað vill hyskið ekkert fara heldur aðeins fá borgað til að hata og afflytja sitt föðurland og stjórnarfar í friði í von um sporslur eftir næstu kosningar.Ekki ólíkt Pírataflokknum hérna.

Þessir demókratar vilja ekkert gera fyrir sín upprunalönd af því að þessar fjórar konur sem tóku þetta til sín vilja búa í skjóli voldugasta ríki heims sem þær hata á borði en og rægja í orði á kostnað kjósenda sinna. Hentistefnan og hræsnin blasir við þeim sem vilja sjá.

Gæti einhver séð hliðstæðu við Píratana okkar eða hvað?

En RÚV kom hatri sínu á Trump Bandaríkjaforseta prýðilega til skila í fréttum kvöldsins. 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922