er kortlögð af dr.John Christy :
Hún sýnir að við notum mest af olíu, svo kolum og síðan gasi, annað er óverulegt sem nemur 3 efstu línunum. Alls tilsvarandi tæpum 14.000 milljónum tonna af olíu.
Nú fara börn um torg og hrópa um að jörðin sé að farast vegna útblásturs CO2. Alveg sama þó að magn þess í andrúmsloftinu hefur ekki verið lægra í 600 milljón ár.
Við Íslendingar viljum leggja á kolefnisskatta til að gera allt mannlíf erfiðara af því að hin opinbera trú segir að heimurinn sé að hitna vegna útblásturs CO2 af mannavöldum. Dr.Christy segir að engar mælingar sýni slíkt.
Á meðan hafa lífslíkur manna vaxið um þriðjung frá 1970.Barnadauði lækkað um 72%, loftmengun hefur minnkað,fæða hefur aukist úr 2300 hitaeiningum á dag í 2800 þrátt fyrir gríðarlega mannfjölgun og sárafátækt í heiminum hefur fallið um helming þrátt fyrir mannfjölgun.
Af hverju halda menn því fram að við Íslendingar séum að forpesta heiminn með útblæstri CO2? Þvílíkt örsmæðarbrot við blásum út miðað við Kína og Indland.
Heildarlosunin af CO2 í heiminum nemur bráðum 35 þúsund milljón tonnum en við Íslendingar losum kannski 6 milljónir tonna af heildinni?
Eigum við að þjást núna fyrir þá sem ekkert gera nema að fjölga stöðugt kolabrennslustöðvum? Hvað með endurreist WOW til viðbótar? Hver á að borga fyrir það?
Er ekki nær fyrir mannkynið að snúa sér að því verkefni að draga úr mannfjölguninni? Selja ófrjósemisaðgerðir fyrir verð sem þá fátæku munar verulega um? Eða hvað annað ósiðlegt?
Flestir eru menn á móti mengun og vinna gegn slíku víðast hvar sem þeir geta. En má enginn efast um réttmæti tilgátanna um hlýnun jarðar vegna orkunotkunar mannkyns?