Borgarstjórnarmeirihlutans gegn bílaumferð birtist í framvæmdum við Sæbraut. Það eru miklar framkvæmdir í því skyni að tefja fyrir umferð sem mest má.
"Nú er unnið að því hörðum höndum að endurnýja umferðarljós og göngu- og hjólaleiðir á gatnamótum Snorrabrautar og Sæbrautar í miðbæ Reykjavíkur. Verður þar einnig lýsing bætt á gönguleiðum frá því sem áður var.
Á þessum umferðarþungu gatnamótum hefur í áratugi verið hægt að beygja til austurs á hægribeygjurein og til vesturs á tveimur beygjuakreinum.
Með þessari framkvæmd verður beygjureinin aflögð og beygjuakreinum í vesturátt fækkað um eina. Áfram verður þó hægt að beygja bæði í austur- og vesturátt að framkvæmdum loknum. Þegar ljósmyndari átti leið um svæðið í gær var búið að moka jarðvegi yfir gömlu beygjureinina í austur. khj@mbl.is
Sigurður Jóhannsson ráðherra hefur nýlega lýst því hvernig skipulagsráðstafanir Dags B. og kumpána í þágu vildarvina hafa gert Sundabraut margfalt dýrari en mögulegt var.
Dýr verður Dagur B. allur og hans einbeitti brotavilji gegn greiðari umferð fyrir Höfuðborgarsvæðið áður en yfir lýkur.