Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Kynhvötin

$
0
0

er hið mikla afl sem er að baki öllu vandamálum mannkynsins.

Hún knýr það besta sem til er í mannlífi, ást og umhyggju. En líka það versta, glæpi, mansal, ofbeldi.

Það er þessi hvöt sem er að baki öllum vandamálum mannkyns. Ef við gætum náð einhverjum böndum á henni þá hefði baráttan í útblásturs-og loftslagsmálum einhvern tilgang en ekki núll eins og nú stefnir.

Jörðin er þegar fulllestuð.

Hannes Pétursson skrifar svo um vandamál mannkynsins:

"Íbúafjöldi t.d. Nígeríu er rúmar 200 milljónir í dag og spár S.Þ gera ráð fyrir tvöföldun íbúa þess lands fyrir miðja öldina og verður þetta vanþróaða Afríkuríki þá orðið fjölmennara en Bandaríkin.

Íbúafjöldi álfunnar er núna um 1.3 milljarðar og mun tvöfaldast á næstu 30 árum gangi spár S.Þ. eftir. Íbúafjöldi sumra Asíuríkja stækkar líka ört, áætlar S.Þ. að íbúafjöldi Pakistan verði um 400 milljónir um miðja öldina.

Það hljóta allir að sjá að í óefni stefnir.

Mig grunar að pólitísk rétthugsun Vesturlandabúa hindri umræðu og gagnrýni á þessa þróun - þú gagnrýnir ekki fólksfjölgum í 3ja heiminum.

Hvernig á að fæða og klæða 9.7 milljarða árið 2050 og á sama tíma draga úr eldsneytiseyðslu mannkyns?

Aukin landnýting, auknar fiskveiðar, auknir vöruflutningar og aukin eldsneytiseyðsla er sennilegri þróun.

Flóttamannastraumurinn til Evrópu mun trúlega margfaldast og verða stjórnlaus eins og fólksfjölgunin.

 

Mikið er fjallað um áhrif mannanna á náttúruna í fjölmiðlum og á meðal stjórnmálamanna á Vesturlöndum. Það er hins vegar eins og menn forðist að fjalla um mannfjölda sprengjuna og hvaða afleiðingar hún mun hafa."

Sumum finnst ósiðlegt að reyna að kaupa fólk sem býr við mestu vána af offjölgun til að undirgangast ráðstafanir til að draga úr frjóseminni.

Trúarkenningar grípa hér inn í og draga úr rökhyggjunni. Þetta má ekki ná yfirhöndinni í ljósi þess vanda sem við er að glíma.

Í veði er öll velferð mannkynsins og okkar þjóðar á komandi árum.

Viljum við vaxandi þrýsting Afríkubúa á það að setjast að Íslandi og á okkar velferð eða viljum við hægja á?

Kynhvötinni er stjórnað af hormónum. Þeir eru þekktir. Er ekki hægt að nota vísindin til að berjast gegn þessari einu raunverulegu vá sem að mannkyni steðjar?

Kynhvötin er viðfangsefnið sem við þurfum að ná að stjórna.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922