Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Við hverju bjuggust menn?

$
0
0

þegar þeir settu sænsku lögin um refsiverð vændiskaup en refsilausa sölu?

"Það sem af er þessu ári hafa komið upp 34 mál hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem grunur er um kaup á vændi.

Á sama tíma í fyrra höfðu komið upp sex sambærileg mál. Þetta kemur fram í svari lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við fyrirspurn Morgunblaðsins. Þegar tölur milli ára eru skoðaðar verður að hafa í huga að miðað er við dagsetningu brots en vegna eðlis málanna koma þau oft til afgreiðslu löngu eftir að brot var framið.

Vegna þessa getur verið mikill munur á tölum ef þær eru annars vegar skoðaðar eftir dagsetningu brots og hins vegar dagsetningu skráningar. Á árinu 2017 komu upp 29 mál þar sem grunur var um kaup á vændi á starfssvæði lögreglunnar á höfuðborgasvæðinu, en árið 2018 voru málin níu, sé miðað við dagsetningar brota.

Á starfssvæði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru greiddar sektir í níu málum þar sem grunur var um kaup á vændi árið 2017. Ekkert málanna fór í ákærumeðferð en þrjú mál eru enn til rannsóknar. Af þeim málum sem komu upp árið 2018 voru greiddar sektir í tveimur málum, eitt fór til ákærumeðferðar og þrjú mál eru enn til rannsóknar.

Fram kom í svari lögreglunnar að á árunum 2010 til 2018 hefðu 96% sakborninga í þeim málum sem varða kaup á vændi á höfuðborgarsvæðinu verið með íslenskt ríkisfang."

Væri ég Alþingismaður myndi ég hafa móral af því að hafa samþykkt svona fyrirsjáanlega ógáfulega löggjöf.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922