Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

EUREKA!

$
0
0

Fyrir sögn í Morgunblaðinu:

"Borgin skoðar veggjöld!

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir til skoðunar að leggja á svonefnd tafagjöld til að stjórna og draga úr umferð einkabíla í Reykjavíkurborg.

Hún segist horfa til góðs árangurs Óslóarborgar af slíkri gjaldtöku.

„Norðmenn hafa beitt mengunar og tafagjöldum. Þau hafa tvenns konar áhrif. Þau draga úr bílaumferð og nýtast gríðarlega vel til að byggja innviði fyrir vistvæna fararmáta,“ segir Sigurborg Ósk.

Umræddri gjaldtöku er ætlað að draga úr mengun og töfum í umferð. Rafbílar hafa fengið undanþágu frá slíkum gjöldum í Ósló. Hófleg gjaldtaka er nú að hefjast af rafbílum..."

„Jafnvel þótt það markmið náist árið 2040 að 58% allra ferða verði með almenningssamgöngum með borgarlínu mun umferð engu að síður aukast. Við munum því ekki ná markmiðum Parísarsamkomulagsins í loftslagsmálum,“ segir Sigurborg Ósk.

Hún segir útfærsluna á fyrstu áföngum fyrirhugaðrar borgarlínu verða kynnta á næstu mánuðum. Við uppbygginguna verði röskun á umferðarflæði á höfuðborgarsvæðinu. Því verði borgarlínan byggð upp í áföngum til að lágmarka röskun."

Þrjú ár ennþá þurfa Reykvíkingar og Höfuðborgarsvæðið að þola enn til viðbótar af þessu vinstrihugsjónaliði eins og Pírötum og Viðreisn sem heldur  þeim Degi B. Eggertssyni og Hjálmari Sveinssyni við illa fengin völd í Borgarstjórn Reykjavíkur.

Það er því miður enn mikið pláss enn fyrir boðaðar þjáningar og afturfarir í umferðarmálum á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Aðeins Seltjarnarnes er staðfast og eindregið á móti Borgarlínuhugmyndinni meðan önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu virðast ætla að opna skattpyngjur sínar fyrir þessari dauðadæmdu hugmynd þessa afturhaldsfólks sem er í algerri mótsögn við þann lífsmáta sem fólkið hefur valið sér.

Fyrst á að útrýma bensínstöðum í Borginni til hagræðis fyrir íbúana. Nú hafa þeir fundið snjallræðið sem dugar:

Skattleggjum einkabílinn af götunum!

EUREKA!

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922